FRÉTT ÝMISLEGT 12. JÚNÍ 2017

Iceland in figures 2017Hagstofa Íslands hefur í dag gefið út bækling á ensku, Iceland in figures 2017, þar sem nálgast má ýmsar lykiltölur um land og þjóð á handhægan hátt. Þetta er tuttugasti og annar árgangur bæklingsins en hann er sniðinn að ferðaþjónustunni og hefur átt miklum vinsældum að fagna meðal leiðsögumanna og annarra ferðalanga.

Þó að bæklingurinn sé smár í sniðum (11x16 sm) skiptist hann í 18 kafla og í honum eru yfir 40 töflur og 19 myndrit. Efni bæklingsins geymir m.a. upplýsingar um veðráttu, umhverfi, mannfjölda, laun og tekjur, lífskjör, vinnumarkað, atvinnuvegi, utanríkisverslun, samgöngur, upplýsingatækni, ferðaþjónustu, verðlag, neyslu, þjóðarbúskap, heilbrigðismál, félagsmál, skóla, menningu, kosningar og fleira.

Bæklingurinn kostar 650 krónur og er til sölu í afgreiðslu Hagstofu Íslands að Borgartúni 21a í Reykjavík. Hann má einnig kaupa í öllum helstu bókaverslunum. Bæklingurinn er einnig aðgengilegur endurgjaldslaust á vef Hagstofunnar en einnig er hægt að panta hann þar og fá sendan heim að dyrum.

Iceland in figures 2017 - útgáfa

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.