FRÉTT ÝMISLEGT 05. NÓVEMBER 2025

Birtingaráætlun Hagstofu Íslands fyrir næsta almanaksár er gefin út í dag en útgáfan er í samræmi við alþjóðlegar kröfur um hagskýrslugerð og tryggir jafnan aðgang notenda að opinberum hagtölum.

Á birtingaráætlun eru meðal annars staðfestar dagsetningar fyrir verðtryggingarvísitölur, launavísitölu svo og hagtölur um landsframleiðslu, vinnumarkað og utanríkisverslun. Dagsetningar næstu átta virka daga á áætluninni eru staðfestar en taki þær breytingum er gefin út fréttatilkynning um það. Birtingar Hagstofunnar eru gerðar aðgengilegar öllum notendum samtímis kl. 9.00 að morgni birtingardags.

Gerast áskrifandi að fréttum Hagstofunnar

Reglur um birtingar Hagstofunnar

Birtingaráætlun 2026

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.