Birtingaráætlun Hagstofunnar fyrir næsta almanaksár er gefin út í dag en útgáfan er í samræmi við alþjóðlegar kröfur um hagskýrslugerð og tryggir jafnan aðgang notenda að opinberum hagtölum.
Á birtingaráætlun eru meðal annars staðfestar dagsetningar fyrir verðtryggingarvísitölur, launavísitölu svo og hagtölur um landsframleiðslu, vinnumarkað og utanríkisverslun. Verði breytingar á birtingaráætluninni mun Hagstofan árétta það sérstaklega með fréttatilkynningu. Dagsetningar næstu átta virka daga á áætluninni eru staðfestar en taki þær breytingum er gefin út fréttatilkynning um það.
Birtingar Hagstofunnar eru gerðar aðgengilegar öllum notendum samtímis kl. 9.00 að morgni birtingardags. Notendur geta fengið sendar tilkynningar um nýjar fréttir með tölvupósti með því að skrá sig í áskriftarþjónustu Hagstofunnar.
Reglur um birtingar Hagstofunnar
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.isDeila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.