FRÉTT ÝMISLEGT 20. NÓVEMBER 2017

Hagstofa Íslands hefur í dag gefið út birtingaráætlun sína fyrir árið 2018. Útgáfa birtingaráætlunar er í samræmi við verklag við hagskýrslugerð sem mótast hefur á alþjóðavettvangi og tryggir jafnan aðgang að opinberum hagtölum.

Sem fyrr mun Hagstofan gefa út fréttatilkynningu verði breytingar á birtingaráætluninni í eftirtöldum flokkum:

  • verðtryggingarvísitölur
    - vísitala neysluverðs
    - vísitala byggingarkostnaðar
  • landsframleiðsla
  • ársfjórðungslegar vinnumarkaðstölur
  • utanríkisverslun
  • mánaðarleg launavísitala (þ.m.t. vísitala greiðslujöfnunar)

Dagsetningar næstu 10 almanaksdaga á áætluninni eru staðfestar og taka ekki breytingum nema gefin sé út fréttatilkynning um það. Aðrar dagsetningar á birtingaráætluninni geta tekið breytingum.

Birtingar Hagstofunnar eru gerðar aðgengilegar öllum notendum samtímis. Þess vegna er allt efni á birtingaráætlun gefið út kl. 9.00 að morgni. Notendur geta fengið sendar tilkynningar um nýjar fréttir með tölvupósti skrái þeir sig í áskriftarþjónustu Hagstofunnar. Auk þess veitir skiptiborð Hagstofunnar, upplýsingaþjónusta eða ábyrgðarmaður birtingar nánari upplýsingar frá kl. 9.00 birtingardaginn.

Birtingaráætlun

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.