FRÉTT ÝMISLEGT 08. SEPTEMBER 2010

Ársskýrsla Hagstofu Íslands 2009Ársskýrsla Hagstofu Íslands fyrir árið 2009 hefur nú verið gefin út. Er það önnur ársskýrslan sem Hagstofan sendir frá sér, en stofnunin varð sjálfstæð stofnun 2008 samkvæmt lögum nr. 163/2007.

Í ársskýrslunni er gerð grein fyrir helstu áherslumálum stofnunarinnar og þeim fjármunum sem varið var til hagskýrslugerðar árið 2009. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að Hagstofan birtir tölfræði um framvindu efnahags- og félagsmála í samræmi við innlendar og alþjóðlegar skuldbindingar nær hvern virkan dag ársins. Um 70-80% af hagtölum er safnað að kröfu alþjóðastofnana, einkum Evrópusambandsins. Um starfsemi Hagstofunnar gilda rúmlega 250 bindandi gerðir Evrópusambandsins auk innlendrar lagasetningar.

Auk skýrslu yfirstjórnar og umfjöllunar um fjármál og rekstur er í ársskýrslunni fjallað um samstarf við notendur, afnot af gögnum, útgáfur Hagstofunnar, starfsmannamál, erlent samstarf og gerð grein fyrir skýrslu framkvæmdastjórnar ESB um stöðu hagskýrslugerðar á Íslandi.

Skýrslan er 28 síður og hana prýðir fjöldi ljósmynda og skýringarmynda.

Ársskýrsluna má skoða hér á vefnum.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.