Fréttasafn Útgáfur 13. SEPTEMBER 2012

Heildarlaunakostnaður á greidda stund jókst frá fyrri ársfjórðungi um 0,3% í samgöngum, 0,6% í byggingarstarfsemi og 1,7% í verslun. Þá var heildarlaunakostnaður óbreyttur frá fyrri ársfjórðungi í iðnaði.

Heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna á greidda stund jókst frá fyrri ársfjórðungi um 0,2% í byggingarstarfsemi. Á sama tímabili dróst þessi sami kostnaður saman um 0,3% í verslun, 0,5% í samgöngum og um 0,8% í iðnaði. Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna eru greiðslur útilokaðar sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili eins og desember- og orlofsuppbót.

Árshækkun heildarlaunakostnaðar á greidda stund frá 2. ársfjórðungi 2011 var á bilinu 1,6% til 5,0%. Mest var hækkunin í iðnaði og samgöngum en minnst í byggingarstarfsemi. Á sama tímabili jókst heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna mest í iðnaði eða 10,3% en minnst í verslun 6,5%.

Vísitala launakostnaðar er kostnaðarvísitala sem sýnir breytingar á launakostnaði á greidda vinnustund og er ekki leiðrétt fyrir breytingum í samsetningu vinnuafls og vinnustunda. Niðurstöður eru birtar með fyrirvara um breytingar. Vísitala launakostnaðar er gefin út ársfjórðungslega og reiknuð samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins nr. 450/2003.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.