FRÉTT VÍSINDI OG TÆKNI 10. MARS 2026

Notkun gervigreindar er orðin talsvert útbreidd á meðal fyrirtækja samkvæmt nýjum niðurstöðum Hagstofu Íslands. Um helmingur fyrirtækja notar einhvers konar gervigreindartækni eða gervigreindarhugbúnað. Mun lægra hlutfall fyrirtækja getur þó tilgreint í hvaða verkefnum tæknin er notuð og enn færri hafa mótað sér formlega stefnu um notkun hennar.

Niðurstöðurnar sýna að 48% fyrirtækja nota gervigreindarhugbúnað af einhverju tagi og 50% segjast nota tilgreinda gervigreindartækni. Á sama tíma segjast 25% fyrirtækja nota gervigreind í tilgreindum verkefnum og 14% hafa mótað sér stefnu um notkun hennar.

Þetta bendir til þess að almenn notkun gervigreindar sé útbreiddari en markviss innleiðing hennar í afmörkuð verkefni og verklag. Ekki er unnt að draga af niðurstöðunum einhlítar ályktanir um ástæður þessa munar. Gögnin sýna þó að víða virðist notkun tækninnar komin lengra en formleg stefnumótun og skilgreining notkunarsviða.

Notkun aðgengilegra veflausna er algengust. Alls nota 46% fyrirtækja hugbúnað á internetinu svo sem ChatGPT eða sambærilegar þjónustur. Þar af nota 39% greidda áskrift að einhverju marki og 37% ókeypis áskrift. 9% nota einungis greidda áskrift. Hlutfall þeirra fyrirtækja sem nota sérþróaðar eða sérbreyttar lausnir er hins vegar mun lægra.

Þá sýna niðurstöðurnar að textatengd notkun er útbreiddust. Alls nota 45% fyrirtækja tækni sem greinir ritmál eða texta, 27% nota tækni sem býr til ritað eða talað mál og 22% nota tækni sem býr til myndir, myndbönd eða hljóð.

Mikill munur er eftir stærð fyrirtækja. Hjá fyrirtækjum með 1–9 starfsmenn nota 28–29% gervigreindarhugbúnað eða tilgreinda tækni en hjá fyrirtækjum með 250 starfsmenn eða fleiri er sambærilegt hlutfall 81%. Formleg stefnumótun er einnig mun algengari á meðal stærri fyrirtækja.

Mest notkun í tilgreindum verkefnum mælist í upplýsingum og fjarskiptum, sérfræðilegri, vísindalegri og tæknilegri starfsemi og í flutningum og geymslu.

Alls tilgreina 31% fyrirtækja einhverjar áhyggjur af notkun gervigreindar. Algengast er að fyrirtæki nefni skort á viðeigandi sérþekkingu en einnig eru nefnd álitamál sem lúta að aðlögun að núverandi kerfum og búnaði sem og siðferðileg og lagaleg álitaefni. Áhyggjur eru algengari á meðal smærri fyrirtækja en þeirra stærri.

Niðurstöðurnar benda jafnframt til þess að tegund áhyggja sé háð stöðu fyrirtækja í innleiðingu gervigreindar. Í atvinnugreinum og stærðarflokkum þar sem notkun í tilgreindum verkefnum og stefnumótun er útbreiddari séu áhyggjur almennt fátíðari. Þar sem notkun í tilgreindum verkefnum og stefnumótun eru fátíðari eru áhyggjur oftar tengdar skorti á sérþekkingu og aðlögun að núverandi kerfum og búnaði.

Niðurstöðurnar eru fengnar úr könnun Hagstofunnar á upplýsingatækninotkun fyrirtækja sem framkvæmd var á árinu 2025. Þetta er í fyrsta sinn sem spurt er um notkun gervigreindar í könnuninni hérlendis. Könnunin byggði á slembiúrtaki á meðal fyrirtækja. Stærð úrtaks var 848 fyrirtæki og svarhlutfall 62%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.