FRÉTT VÍSINDI OG TÆKNI 15. NÓVEMBER 2017

Á þessu ári eru 82% fyrirtækja* hér á landi með eigin vef. Þriðjungur þeirra býður upp á að vörur eða þjónusta sé pöntuð af vefnum, mismikið eftir atvinnugreinum, flest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum (46%). Fjórðungur fyrirtækja tekur við pöntunum í gegnum vef eða smáforrit, flest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum (35%). Þá nota tveir þriðju hlutar fyrirtækja samfélagsmiðla til að þróa ímynd sína eða markaðssetja vörur. Um þriðjungur notar samfélagsmiðla til að ráða fólk til starfa, en það er nokkur fjölgun síðan árið 2013 þegar þetta hlutfall var 19%. Rúmlega helmingur fyrirtækja notar samfélagsmiðla til að taka við ábendingum eða fyrirspurnum og svara þeim. Það er einnig fjölgun frá árinu 2013 þegar hlutfallið var 30%.

Hagstofan birtir nú niðurstöður úr rannsókn á notkun fyrirtækja á upplýsingatækni hér á landi og má nálgast talnaefnið í töflum hér á vefnum. Síðast fór samskonar rannsókn fram árið 2014.

*Hér er um að ræða fyrirtæki með að lágmarki 10 starfsmenn en eftirfarandi atvinnugreinar eru undanskildar (skv. ÍSAT-atvinnugreinaflokkuninni): Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar (ÍSAT 01–03); námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu (ÍSAT 05–09); opinber stjórnsýsla og varnarmál; almannatryggingar (ÍSAT 84); fræðslustarfsemi (ÍSAT 85); heilbrigðisþjónusta (ÍSAT 86); umönnun á dvalarheimilum og félagsþjónusta án dvalar á stofnun (ÍSAT 87–88); menningar-, íþrótta- og tómstundastafsemi (ÍSAT 90–93); félagasamtök og önnur þjónustustarfsemi (ÍSAT 94–96).

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.