FRÉTT VÍSINDI OG TÆKNI 14. JÚLÍ 2008

Út er komið hefti í efnisflokknum Upplýsingatækni þar sem birtar eru niðurstöður úr sjöundu rannsókn Hagstofunnar á notkun heimila og einstaklinga á tölvum og interneti. Könnunin var gerð fyrr á þessu ári.

Niðurstöður sýna að tölvur eru á 92% heimila og 88% heimila gátu tengst interneti. Nettengd heimili nota í langflestum tilvikum ADSL, SDSL eða annars konar xDSL tengingu, eða í 94% tilvika. Einungis 5% nettengdra heimila nota hefðbundna upphringitengingu eða ISDN.

Rúmlega 90% landsmanna á aldrinum 16–74 ára nota tölvu og internet. Ástæður netnotkunar breytast lítið milli ára og líkt og fyrri ár var miðillinn helst notaður til samskipta og upplýsingaleitar og til þess að sinna bankaviðskiptum. Árið 2008 höfðu 36% internetnotenda pantað og keypt vörur eða þjónustu um internetið á því þriggja mánaða tímabili sem spurt var um. Algengust eru kaup á farmiðum, gistingu eða annarri þjónustu tengdri ferðalögum.

Ríflega 15% þeirra sem nota internetið halda úti eigin bloggsíðu og 66% þeirra sem vafra um á internetinu fylgjast með bloggsíðum annarra.

Í heftinu er yfirlit yfir helstu niðurstöður rannsóknarinnar. Ýtarlegri niðurstöður má finna á heimasíðu Hagstofunnar undir efnisliðnum Upplýsingatækni.

Notkun heimila og einstaklinga á tölvum og interneti 2008 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.