FRÉTT VINNUMARKAÐUR 25. NÓVEMBER 2021

Vinsamlegast athugið að þessi fréttatilkynning var leiðrétt 26. nóvember 2021 klukkan 16:30. Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi reyndist vera 5,7% eftir leiðréttingu í stað 5,8% í upphaflegri útgáfu fréttarinnar. Talnaefni hefur verið leiðrétt og uppfært.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 5,7% í október 2021 samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 79,8% og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 75,2%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 2,2 prósentustig á milli mánaða á meðan árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi dróst saman um 1,3 prósentustig. Árstíðaleiðrétt leitni atvinnuleysis hefur dregist saman um 0,9 prósentustig síðustu sex mánuði og leitni hlutfalls starfandi aukist um 1,4 prósentustig.

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar, án árstíðaleiðréttingar, er áætlað að 210.500 (±7.200) einstaklingar á aldrinum 16-24 ára hafi verið á vinnumarkaði í október 2021 sem jafngildir 79,1% (±2,7) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu voru 198.900 (±5.900) starfandi og 11.600 (±3.400) atvinnulausir og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 74,7% (±3,0) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 5,5% (±1,6). Starfandi unnu að jafnaði 36 (±1,3) stundir á viku í október 2021. Samanburður við október 2020 sýnir að atvinnuleysi dróst saman um 3,2 prósentustig á milli ára og hlutfall starfandi jókst um 5,7 prósentustig.

Í október 2021 er áætlað að 30.300 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) sem jafngildir 13,8% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Af þeim voru 38,1% atvinnulausir, 18,6% tilbúnir að vinna en ekki að leita, 10,0% í atvinnuleit en ekki tilbúnir að vinna og 33,3% vinnulitlir (starfandi í hlutastarfi og vilja vinna meira). Samanburður við október 2020 sýnir að hlutfall þeirra sem hafa óuppfyllta þörf fyrir atvinnu hefur lækkað um 3,7 prósentustig á milli ára. Árstíðaleiðréttur slaki hefur þó aukist lítillega eða um 0,4 prósentustig á síðustu sex mánuðum.

Samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðum þar sem tölur eru námundaðar að næsta hundraði.

Tafla 1. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétting
 maí.21jún.21júl.21ágú.21sep.21okt.21
Alls 16–74 ára
Atvinnuþátttaka78,579,278,579,179,379,2
Hlutfall starfandi73,474,374,975,375,775,5
Atvinnuleysi5,65,55,25,13,55,8
Vinnustundir 34,6 34,8 35,2 34,9 35,2 35,2
Vinnuafl206.900209.000207.400209.600210.600210.700
Starfandi193.300196.000197.900199.600201.100200.900
Atvinnulausir11.60011.40010.70010.6007.30012.200
Utan vinnumarkaðar57.50054.80054.90055.60054.50054.000
Áætlaður mannfjöldi263.400263.800264.300264.900265.600266.000

Um gögnin
Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir október 2021 ná til fjögurra vikna frá 4. til og með 31. október. Í úrtak völdust af handahófi 1.532 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára með lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.492 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 936 einstaklingum sem jafngildir 62,7% svarhlutfalli.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1037 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.