Í mars 2024 voru 9.500 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 4,1%, hlutfall starfandi var 77,8% og atvinnuþátttaka 81,1%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 0,5 prósentustig á milli mánaða á sama tíma og hlutfall starfandi minnkaði um 0,6 prósentustig og atvinnuþátttaka lækkaði lítillega eða um 0,2 stig.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.isDeila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.