FRÉTT VINNUMARKAÐUR 28. APRÍL 2021

Samtals voru 17.000 einstaklingar atvinnulausir í mars 2021 samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands, sem jafngildir 8,3% atvinnuleysi. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 78,1% og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 71,8%. Samanburður við febrúar 2021 sýnir að árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi dróst saman um 0,3 prósentustig á milli mánaða og árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 1,9 prósentustig. Síðustu sex mánuði hefur leitni hlutfalls starfandi lækkað um 0,3 prósentustig og leitni atvinnuleysis hækkað um 0,4 prósentustig.

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar er áætlað að 202.700 (±6.700) einstaklingar á aldrinum 16-74 ára hafi verið á vinnumarkaði í mars 2021 sem jafngildir 77,0% (±2,5) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu er áætlað að 186.200 (±4.900) hafi verið starfandi og 16.700 (±3.400) án atvinnu og í atvinnuleit. Áætlað hlutfall starfandi af mannfjölda var 70,8 (±2,6) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 8,2% (±1,7). Samanburður við mars 2020 sýnir að atvinnulausum fjölgaði um 11.200 manns á milli ára eða um 5,4 prósentustig. Hlutfall starfandi dróst saman um 2,6 prósentustig á meðan atvinnuþátttaka jókst um 1,4 prósentustig á milli ára. Þó sjá megi nokkra aukningu í atvinnuþátttöku á milli ára er atvinnuþátttaka þó töluvert lægri nú en í mars árin 2017-2019 þegar hún var á bilinu 79,3% til 83,0%.

Slaki á vinnumarkaði
Töluverður slaki var á vinnumarkaði í mars 2021. Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar sýna að um 37.600 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu sem jafngildir 17,4% af einstaklingum á vinnumarkaði og mögulegu vinnuafli. Af þeim voru 44,3% atvinnulausir, 17,9% tilbúnir að vinna en ekki að leita, 16,2% í vinnuleit en ekki tilbúnir að vinna og 21,6% starfandi en vinnulitlir og vildu vinna meira. Samanburður við mars 2020 sýnir að slaki á vinnumarkaði hefur aukist um 7,2 prósentustig á milli ára. Sambærilegar tölur um slaka mátti sjá í október 2020.

Meðalvinnutími í mars var 32,8 stundir
Starfandi á vinnumarkaði unnu að jafnaði 32,8 (±1,1) stundir í mars 2021. Rétt er að ítreka að gerðar voru breytingar um síðustu áramót á mælingu vikulegra vinnustunda í vinnumarkaðsrannsókn sem urðu þess valdandi að skipulögð hlé og fjarvera vegna persónulegra erinda teljast ekki til vinnutíma. Eðlilegt er að mældur vinnutími dragist saman vegna breytinganna. Niðurstöður fyrir fyrstu þrjá mánuði í notkun nýrrar mælingar benda til þess að ný mæling sé að meðaltali 1,5 stundum lægri en eldri mæling.

Um gögnin
Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir mars 2021 ná til fimm vikna, frá 1. mars til og með 4. apríl. Í úrtak völdust af handahófi 1.904 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára með lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.861 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.202 einstaklingum sem jafngildir 64,6% svarhlutfalli.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1037 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.