Í maí 2025 var atvinnuleysi 3,1% samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi var 78,6% og atvinnuþátttaka 81,1%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi minnkaði um 0,2 prósentustig á milli mánaða. Hlutfall starfandi stóð nánast í stað og atvinnuþátttaka dróst lítillega saman eða um 0,3 prósentustig.
Samkvæmt mælingu voru 10.700 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára atvinnulausir í maí og mælt atvinnuleysi 4,5%, atvinnuþátttaka 82,3% og hlutfall starfandi var samkvæmt mælingu 78,6%.