FRÉTT VINNUMARKAÐUR 23. JÚNÍ 2022

Hlutfall atvinnulausra var 3,5% í maí 2022 samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 80,8% og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 78,0%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 1,0 prósentustig á milli mánaða og hlutfall starfandi jókst um 0,4 prósentustig. Árstíðaleiðrétt leitni atvinnuleysis hefur lækkað um 1,0 prósentustig síðustu sex mánuði á meðan leitni hlutfalls starfandi hefur aukist um 1,1 prósentustig.

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknarinnar, án árstíðaleiðréttingar, voru 225.000 (±6.600) einstaklingar á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í maí 2022 sem jafngildir 83,4% (±2,5) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu voru 211.900 (±6.000) starfandi og 13.100 (±4.100) atvinnulausir og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,6% (±2,8) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 5,8% (±1,8). Starfandi unnu að jafnaði 36,7 (±1,4) stundir á viku í maí 2022. Samanborið við maí 2021 hefur atvinnuþátttaka aukist um 3,4 prósentustig á milli ára. Hlutfall starfandi jókst um 5,3 prósentustig á milli ára og hlutfall atvinnulausra dróst saman um 2,6 prósentustig.

Áætlað er að 25.000 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) í maí 2022 sem jafngildir 10,8% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Af þeim voru 52,6% atvinnulausir, 16,0% tilbúnir að vinna en ekki að leita, 5,1% í atvinnuleit en ekki tilbúnir að vinna og 26,3% vinnulitlir (starfandi í hlutastarfi og vilja vinna meira). Samanburður við maí 2021 sýnir að hlutfall þeirra sem hafa óuppfyllta þörf fyrir atvinnu hefur lækkað um 5,8 prósentustig á milli ára. Árstíðaleiðrétt leitni slaka hefur dregist saman um 2,5 prósentustig síðustu sex mánuði.

Vinsamlegast athugið að samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðum þar sem tölur eru námundaðar að næsta hundraði.

Um gögnin
Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir maí 2022 ná til fjögurra vikna frá 1. maí til og með 28.maí. Í úrtak völdust af handahófi 1.552 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára með lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.523 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 883 einstaklingum sem jafngildir 58,0% svarhlutfalli.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1037 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.