FRÉTT VINNUMARKAÐUR 24. FEBRÚAR 2022

Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar (VMR) mældist atvinnuleysi 3,3% í janúar 2022. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 4,9 prósentustig á milli ára og hefur hlutfall atvinnulausra ekki mælst lægra síðan í mars 2020 þegar takmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins fóru að hafa áhrif á íslenskan vinnumarkað.

Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 79,3% í janúar 2022 og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 76,7%. Atvinnuleysi dróst saman um 1,2 prósentustig á milli mánaða á sama tíma og hlutfall starfandi jókst um 0,8 prósentustig. Árstíðaleiðrétt leitni atvinnuleysis var 4,3% og hefur dregist saman um 0,8 prósentustig síðustu sex mánuði á meðan árstíðaleiðrétt leitni hlutfalls starfandi jókst um 0,6 prósentustig.

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar, án árstíðaleiðréttingar, má áætla að 211.800 (±7.000) einstaklingar á aldrinum 16-74 ára hafi verið á vinnumarkaði í janúar 2022 sem jafngildir 79,1% (±2,6) atvinnuþátttöku. Af vinnuafli voru 204.800 (±5.900) starfandi og 7.000 (±2.500) atvinnulausir og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 76,5% (±2,9) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 3,3% (±1,2). Samanborið við janúar 2021 jókst hlutfall starfandi um 7 prósentustig og atvinnuleysi dróst saman um 5,3 prósentustig. Starfandi unnu að jafnaði 34,6 (±1,2) stundir á viku í janúar 2022 sem er 1,9 stundum minna en í janúar 2021.

Áætlað er að 28.500 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) í janúar 2022 sem jafngildir 12,9% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Af þeim voru 24,6% atvinnulausir, 24,9% tilbúnir að vinna en ekki að leita, 7,3% í atvinnuleit en ekki tilbúnir að vinna og 43,1% vinnulitlir (starfandi í hlutastarfi og vilja vinna meira). Samanburður við janúar 2021 sýnir að hlutfall þeirra sem hafa óuppfyllta þörf fyrir atvinnu hefur lækkað um 3,4 prósentustig á milli ára. Árstíðaleiðrétt leitni slaka hefur dregist saman um 0,8 prósentustig síðustu sex mánuði.

Vinsamlegast athugið að samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðum þar sem tölur eru námundaðar að næsta hundraði.

Um gögnin
Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir janúar 2022 ná til fjögurra vikna frá 3. janúar til og með 30. janúar. Í úrtak völdust af handahófi 1.520 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára með lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.489 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 928 einstaklingum sem jafngildir 62,3% svarhlutfalli.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1037 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.