Í febrúar 2026 voru 17.000 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 7,1%, hlutfall starfandi var 75% og atvinnuþátttaka 80,8%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 0,4 prósentustig á milli janúar og febrúar 2026, hlutfall starfandi lækkaði um 0,8 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 0,6 prósentustig.
Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 7,9% í febrúar 2026. Fjöldi atvinnulausra var um 18.400. Hlutfall starfandi var 72,8%, sem samsvarar tæplega 213.300 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 79,1% eða um 231.700 manns á vinnumarkaði. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst atvinnuleysi um 1,9 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 1,9 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 0,6 stig.
Frá því í nóvember 2025 hefur svörun þátttakenda vinnumarkaðsrannsóknar aukist umtalsvert, og þá sérstaklega á meðal innflytjenda (16 til 74 ára) þar sem svarhlutfall hefur farið úr um og yfir 17% að jafnaði síðast liðin tvö ár í tæplega 41% nú í febrúar 2026. Þetta hefur leitt til þess að forsendur á úrvinnslu rannsóknarinnar hafa breyst og til að mæta þessum breyttu aðstæðum hafa vogir rannsóknarinnar verið endurmetnar. Mánaðarlegar niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir janúar hafa því verið endurreiknaðar með þessari nýju aðferð.