TALNAEFNI VINNUMARKAÐUR 24. MAÍ 2024

Í apríl 2024 voru 8.500 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 3,6%, hlutfall starfandi var 79,7% og atvinnuþátttaka 82,7%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 0,9 prósentustig á milli mánaða á sama tíma og hlutfall starfandi jókst um tvö prósentustig og atvinnuþátttaka jókst einnig eða um 1,4 stig.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.