Á fjórða ársfjórðungi 2018 voru að jafnaði 203.700 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 198.900 starfandi en 4.900 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka var 80,5%, hlutfall starfandi 78,6% en atvinnuleysi 2,4%. Atvinnulausar konur voru 2.100 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,3%. Atvinnulausir karlar voru 2.700 eða 2,4%. Atvinnuleysi var 2,4% á höfuðborgarsvæðinu og sömu sögu er að segja utan þess. Samanborið við fjórða ársfjórðung 2017 fjölgaði starfandi fólki um 4.500 en hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði þó um hálft prósentustig. Fjöldi atvinnulausra minnkaði lítillega á milli ára eða rétt um 300 manns og hlutfall þeirra af vinnuafli lækkaði um 0,2 prósentustig.

Atvinnuleysi eftir ársfjórðungum 2010–2018

Hlutfall starfandi eftir ársfjórðungum 2010–2018

Vinnutími
Á fjórða ársfjórðungi 2018 voru að jafnaði 182.900 manns við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins eða 92,0% starfandi fólks og 73,3% af heildarmannfjölda 16–74 ára. Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku voru 38,3 klukkustund hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 43,4 klukkustundir hjá þeim sem voru í fullu starfi og 23,0 klukkustundir hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Vinnumarkaður á 4. ársfjórðungi 2018 - Hagtíðindi
Talnaefni