Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir annan ársfjórðung 2025 sýna að 238.900 manns á aldrinum 16–74 ára voru að jafnaði á vinnumarkaði. Af þeim voru 230.500 starfandi og 8.500 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall þeirra af mannfjölda, eða atvinnuþátttaka, var 82,7%. Hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda var 79,8% og atvinnuleysi var 3,5% af öllum 16-74 ára á vinnumarkaði.
Á öðrum ársfjórðungi 2025 voru 108.100 konur starfandi, eða 77,3%, en karlar voru 122.400 eða 82,1%. Að jafnaði voru 203.300 manns við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins eða 87,1% starfandi fólks og 70,4% af heildarmannfjölda 16–74 ára. Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku var 35,2 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 38,8 klukkustundir hjá þeim sem voru í fullu starfi og 21,8 klukkustundir hjá þeim sem voru í hlutastarfi.
Samanborið við annan ársfjórðung 2024 stóð fjöldi starfandi fólks nánast alveg í stað en hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði lítillega eða um rétt rúmt prósentustig. Starfandi konum fjölgaði um sex hundruð á meðan körlum fækkaði um átta hundruð. Hlutfall starfandi kvenna lækkaði um 0,3 prósentustig á meðan hlutfall starfandi karla lækkaði um 2,1 prósentustig.
Af starfandi fólki á öðrum ársfjórðungi 2025 voru um 177.100 í fullu starfi, eða 76,8%, og um 53.400 í hlutastarfi eða 23,2%. Fjöldi einstaklinga í fullu starfi minnkaði um 2.000 frá öðrum ársfjórðungi 2024 en hlutfall þeirra af heildarfjölda starfandi hækkaði um 0,9 prósentustig. Af starfandi konum voru 66,2% í fullu starfi á öðrum ársfjórðungi og 86,2% starfandi karla. Af þeim sem voru í hlutastarfi töldust um 8.700 manns vinnulitlir eða 3,8% af öllum starfandi. Á sama ársfjórðungi 2024 voru 4,6% vinnulitlir en þá var fjöldi þeirra 10.600. Til vinnulítilla telst fólk í hlutastarfi sem bæði getur og vill vinna fleiri vinnustundir en það gerir.
Meðalfjöldi unninna stunda
Á öðrum ársfjórðungi 2025 var meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku 35,2 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu. Til samanburðar var meðalfjöldi vinnustunda 36,2 stundir á öðrum ársfjórðungi 2024 og hefur því meðalfjöldi heildarvinnustunda minnkað um eina klukkustund á viku. Á öðrum ársfjórðungi 2025 var meðalfjöldi heildarvinnustunda kvenna 31,6 stundir en 38,1 stund hjá körlum. Til samanburðar unnu konur að jafnaði 32,4 stundir og karlar 39,3 stundir á öðrum ársfjórðungi 2024.
Atvinnuleysi 3,5%
Á öðrum ársfjórðungi 2025 töldust að meðaltali um 8.500 einstaklingar atvinnulausir eða 3,5% af heildarvinnuafli 16-74 ára. Mældist atvinnuleysið 3,5% hjá konum og 3,6% hjá körlum. Til samanburðar voru um 8.400 einstaklingar atvinnulausir á öðrum ársfjórðungi 2024 og var hlutfall þeirra af vinnuafli nákvæmlega það sama og nú eða 3,5% en þá var atvinnuleysi 2,9% hjá konum og 4,0% hjá körlum.
Hjá þeim sem eru í aldurshópnum 16 til 24 ára var atvinnuleysi 7,7%% en var 10,6% á sama ársfjórðungi árið 2024. Hjá aldurshópnum 25 til 54 ára var atvinnuleysi 3,2% sem er 0,7 prósentustigum meira en það var á öðrum ársfjórðungi 2024. Hjá elsta hópnum, 55-74 ára, var atvinnuleysið 1,2% sem er 0,1 prósentustigi meira en það var á öðrum ársfjórðungi síðasta árs.