FRÉTT VINNUMARKAÐUR 11. ÁGÚST 2023

Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir annan ársfjórðung 2023 sýna að staða vinnuafls á íslenskum vinnumarkaði hefur haldist tiltölulega stöðug á milli ára.

Hlutfall mannfjölda 16 til 74 ára á vinnumarkaði, eða atvinnuþátttaka, mældist 81,9% á öðrum ársfjórðungi 2023 sem er litlu hærra hlutfall en á sama ársfjórðungi 2022, þegar atvinnuþátttaka mældist 81,6%. Fjöldi starfandi fólks á öðrum ársfjórðungi 2023 var 222.100 manns og var hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda 79,1%.

Frá öðrum ársfjórðungi 2022 til annars ársfjórðungs 2023 fjölgaði starfandi fólki um 11.500 manns og hlutfall þess af mannfjölda hækkaði lítillega eða um eitt prósentustig. Hlutfall starfandi kvenna var 75,8 % og starfandi karla 82,2%. Starfandi konum fjölgaði um 4.200 og körlum um 6.700. Hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu var 79,4% og utan höfuðborgarsvæðis 78,6%.

Til samanburðar voru 210.600 starfandi einstaklinga á öðrum ársfjórðungi 2022 og hlutfall af mannfjölda var 78,1%. Hlutfall starfandi kvenna var 74,8% og starfandi karla 81,1%. Þá var hlutfall starfandi fólks á höfuðborgarsvæðinu 78,2% og 77,9% utan þess.

Af starfandi fólki á öðrum ársfjórðungi 2023 voru 170.800 í fullu starfi, eða 86,4%, og 51.300 í hlutastarfi eða 13,6%. Fjöldi einstaklinga í fullu starfi jókst um 5.100 frá öðrum ársfjórðungi 2022 og jókst hlutfall þeirra af heildarfjölda starfandi lítillega eða um 0,6 prósentustig. Af starfandi konum voru 86,8% í fullu starfi á öðrum ársfjórðungi 2023 og 88,5% af starfandi körlum. Af þeim sem voru í hlutastarfi á öðrum ársfjórðungi 2023 töldust um 9.300 manns vinnulitlir eða 4,2% af öllum starfandi. Til samanburðar töldust 6.800 manns vinnulitlir á sama ársfjórðungi 2022 eða 3,2%. Til vinnulítilla telst fólk í hlutastarfi sem bæði getur og vill vinna fleiri vinnustundir en það gerir.

Meðalfjöldi unninna stunda
Á öðrum ársfjórðungi 2023 var meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku 35,8 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu. Heildarvinnustundir kvenna voru að meðaltali 31,9 stundir en 38,9 stundir hjá körlum. Til samanburðar var meðalfjöldi vinnustunda 36,3 stundir á öðrum ársfjórðungi 2022. Konur unnu þá að jafnaði 32,5 stundir og karlar 39,5 stundir. Þegar á heildina er litið vann starfandi fólk að jafnaði 36 mínútum skemur á öðrum ársfjórðungi 2023 en það gerði á sama ársfjórðungi 2022. Á það bæði við um karla og konur.

Atvinnuleysi meira á meðal karla en kvenna
Á öðrum ársfjórðungi 2023 töldust að meðaltali 7.800 einstaklingar atvinnulausir eða um 3,4% af heildarvinnuafli 16-74 ára. Atvinnuleysi kvenna var 2,6% og karla 4,1%. Til samanburðar voru um 9.500 einstaklingar atvinnulausir á öðrum ársfjórðungi 2022 og var hlutfall þeirra af vinnuafli þá 4,3%. Atvinnuleysi á meðal kvenna var þá 3,2% og á meðal karla 5,2%.

Hjá þeim sem eru í aldurshópnum 16 til 24 ára var atvinnuleysi 9,7% sem er nokkru lægra en það var á sama ársfjórðungi árið 2022 þegar það var 13,9%. Hjá aldurshópnum 25 til 54 ára var atvinnuleysi 2,7% og stóð nánast í stað á milli ára. Hjá elsta hópnum, 55-74 ára, var atvinnuleysið eitt prósent samanborið við 2,5% á öðrum ársfjórðungi 2022.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.