FRÉTT VINNUMARKAÐUR 09. MAÍ 2025

Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir fyrsta ársfjórðung 2025 sýna að 231.900 manns á aldrinum 16–74 ára voru að jafnaði á vinnumarkaði. Af þeim voru 220.500 starfandi og 11.500 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall þeirra af mannfjölda, eða atvinnuþátttaka, var 80,5%. Hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda var 76,5% og atvinnuleysi var 5,0% af öllum 16-74 ára á vinnumarkaði.

Á fyrsta ársfjórðungi 2025 voru 102.800 konur starfandi, eða 73,6%, en karlar voru 117.700 eða 79,1%. Að jafnaði voru 200.100 manns við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins eða 90,8% starfandi fólks og 69,4% af heildarmannfjölda 16–74 ára. Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku var 35,7 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 40,5 klukkustundir hjá þeim sem voru í fullu starfi og 21,5 klukkustundir hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Samanborið við fyrsta ársfjórðung 2024 fjölgaði starfandi fólki um 1.100 og hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði lítillega eða um tæplega eitt prósentustig. Fjöldi starfandi kvenna stóð í stað á meðan körlum fjölgaði um eitt þúsund. Hlutfall starfandi kvenna lækkaði því um 1,2 prósentustig og hlutfall starfandi karla lækkaði um 0,6 prósentustig. Atvinnuleysi jókst þegar á heildina er litið um 0,9 prósentustig, 1,3 hjá konum og hálft prósentustig hjá körlum. Atvinnulausum konum fjölgaði um 1.500 á milli ára og körlum um 600 manns.

Af starfandi fólki á fyrsta ársfjórðungi 2025 voru um 162.500 í fullu starfi, eða 73,7%, og um 57.900 í hlutastarfi eða 26,3%. Fjöldi einstaklinga í fullu starfi stóð nánast alveg í stað frá fyrsta ársfjórðungi 2024 en hlutfall þeirra af heildarfjölda starfandi lækkaði um 0,4 prósentustig. Af starfandi konum voru 63,1% í fullu starfi á fyrsta ársfjórðungi og 83,0% starfandi karla. Af þeim sem voru í hlutastarfi töldust um 10.700 manns vinnulitlir eða 4,8% af öllum starfandi. Á sama ársfjórðungi 2024 voru 4,6% vinnulitlir en þá var fjöldi þeirra 10.100. Til vinnulítilla telst fólk í hlutastarfi sem bæði getur og vill vinna fleiri vinnustundir en það gerir.

Meðalfjöldi unninna stunda
Á fyrsta ársfjórðungi 2025 var meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku 35,7 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu. Til samanburðar var meðalfjöldi vinnustunda 34,8 stundir á fyrsta ársfjórðungi 2024 og hefur því meðalfjöldi heildarvinnustunda aukist um rétt tæpa klukkustund á viku. Á fyrsta ársfjórðungi 2025 var meðalfjöldi heildarvinnustunda kvenna 32,1 stund en 38,7 stundir hjá körlum. Til samanburðar unnu konur að jafnaði 31,6 stundir og karlar 37,6 stundir á fyrsta ársfjórðungi 2024.

Atvinnuleysi fimm prósent
Á fyrsta ársfjórðungi 2025 töldust að meðaltali 11.500 einstaklingar atvinnulausir eða 5,0% af heildarvinnuafli 16-74 ára. Mældist atvinnuleysið 4,8% hjá konum og 5,1% hjá körlum. Til samanburðar voru um 9.300 einstaklingar atvinnulausir á fyrsta ársfjórðungi 2024 og var hlutfall þeirra af vinnuafli nokkru lægra en nú eða 4,1% en þá var atvinnuleysi 3,5% hjá konum og 4,6% hjá körlum.

Hjá þeim sem eru í aldurshópnum 16 til 24 ára var atvinnuleysi 12,2% en var 8,1% á sama ársfjórðungi árið 2024. Hjá aldurshópnum 25 til 54 ára var atvinnuleysi 4,1% sem er 0,3 prósentustigum meira en það var á fyrsta ársfjórðungi 2024. Hjá elsta hópnum, 55-74 ára, var atvinnuleysið 1,9% samanborið við slétt tvö prósent á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.