FRÉTT VINNUMARKAÐUR 26. OKTÓBER 2016

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 195.000 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í september 2016, sem jafngildir 82,3% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 189.300 starfandi og 5.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,9% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3%. Samanburður mælinga fyrir september 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan jókst um 0,9 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 8.500 og hlutfallið af mannfjölda hækkaði um 1,6 stig. Atvinnulausum fækkaði um 1.300 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 0,8 prósentustig.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára september 2016

Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 3,2% í september
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 198.300 í september 2016 sem jafngildir 84,1% atvinnuþátttöku, sem er sama hlutfall og í ágúst. Fjöldi atvinnulausra í ágúst var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 6.400 sem er aukning um 200 manns frá því í ágúst. Hlutfall atvinnulausra jókst lítillega á milli ágúst og september, eða úr 3,1% í 3,2%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í september 2016 var 81,4%, sem er nánast sama hlutfall og í ágúst. Þegar horft er til síðust sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi stendur nánast í stað, en á síðustu tólf mánuðum hefur það lækkað um 0,7 prósentustig. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aftur á móti aukist um 0,7 stig og um 1,6 stig síðustu tólf mánuði.

 

 


Framkvæmd
September 2016 nær til fimm vikna, eða frá 29. ágúst til 2. október. Úrtakið var 1.513 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.467 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.083 einstaklingum sem jafngildir 73,8% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,2 stig, hlutfall starfandi ±2,3 stig og og atvinnuleysi ±1,1 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í september - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2014 (±95%)  2015 (±95%)  2016 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 79,2 2,6 81,4 2,5 82,3 2,2
Hlutfall starfandi 75,9 2,7 78,3 2,7 79,9 2,3
Atvinnuleysi 4,1 1,5 3,8 1,1 3,0 1,1
Vinnustundir 39,9 1,3 40,7 1,3 41,2 1,2
Vinnuafl 183.200 6.000 187.900 5.800 195.000 5.200
Starfandi 175.700 6.300 180.800 6.300 189.300 5.500
Atvinnulausir 7.500 2.600 7.100 2.800 5.800 2.300
Utan vinnumarkaðar 48.200 6.000 42.900 5.800 41.900 5.200
Áætlaður mannfjöldi 231.400 230.800 237.000

 

Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
  apr.16 maí.16 jún.16 júl.16 ágú.16 sep.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 84,1 83,5 82,8 82,9 84,1 84,1
Hlutfall starfandi 81,1 81,8 80,7 80,5 81,5 81,4
Atvinnuleysi 3,6 2,1 2,5 2,9 3,1 3,2
Vinnustundir 40,3 40,3 39,8 39,8 39,7 40,4
Vinnuafl 197.100 195.400 193.200 195.300 197.300 198.300
Starfandi 190.000 191.300 188.400 189.700 191.200 191.900
Atvinnulausir 7.000 4.100 4.800 5.700 6.100 6.400
Utan vinnumarkaðar 37.300 38.500 40.100 40.400 37.300 37.500
Áætlaður mannfjöldi 234.400 234.000 233.400 235.700 234.600 235.800

 

Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
  apr.16 maí.16 jún.16 júl.16 ágú.16 sep.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,1 83,3 83,4 83,6 83,7 83,7
Hlutfall starfandi 80,6 80,8 81,0 81,1 81,2 81,3
Atvinnuleysi 3,0 3,0 2,9 2,9 3,0 2,9
Vinnustundir 40,2 40,2 40,1 40,0 40,0 40,0
Vinnuafl 194.800 195.300 195.800 196.300 196.900 197.300
Starfandi 188.900 189.500 190.000 190.600 191.100 191.500
Atvinnulausir 5.900 5.800 5.700 5.800 5.800 5.800
Utan vinnumarkaðar 39.600 39.200 38.900 38.600 38.500 38.400
Áætlaður mannfjöldi 234.400 234.500 234.700 235.000 235.400 235.700

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.