FRÉTT VINNUMARKAÐUR 23. NÓVEMBER 2016

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 197.600 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í október 2016, sem jafngildir 82,5% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 192.200 starfandi og 5.400 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 80,2% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,7%. Samanburður mælinga fyrir október 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan jókst um 1,7 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 12.900 og hlutfallið af mannfjölda hækkaði um 2,6 stig. Atvinnulausum fækkaði um 1.700 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 0,7 prósentustig.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára október 2016



Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 2,9% í október
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 199.600 í október 2016 sem jafngildir 83,2% atvinnuþátttöku, sem er 0,8 prósentustigum lægra en í september. Fjöldi atvinnulausra í október var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 5.800 sem er fækkun um 600 manns frá því í september. Hlutfall atvinnulausra lækkaði því á milli september og október, úr 3,2% í 2,9%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í október 2016 var 80,8%, sem er 0,4 stigum lægra en í september. Þegar horft er til síðust sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi stendur nánast í stað, en á síðustu tólf mánuðum hefur það lækkað um 0,6 prósentustig. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aftur á móti aukist um 0,5 stig og um 1,4 stig síðustu tólf mánuði.

 

Framkvæmd
Október 2016 nær til fjögurra vikna, eða frá 3. til 30. október. Úrtakið var 1.214 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.166 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 873 einstaklingum sem jafngildir 74,9% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,5 stig, hlutfall starfandi ±2,6 stig og og atvinnuleysi ±1,2 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði. Allar tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungs eru bráðabrigðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í október - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2014 (±95%)  2015 (±95%)  2016 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 81,9 2,1 80,7 2,3 82,5 2,5
Hlutfall starfandi 77,8 2,3 77,7 2,4 80,2 2,6
Atvinnuleysi 5,0 1,4 3,8 1,2 2,7 1,2
Vinnustundir 39,8 1,1 40,9 1,2 40,2 1,3
Vinnuafl 188.000 4.900 186.500 5.400 197.600 6.000
Starfandi 178.600 5.400 179.300 5.700 192.200 6.300
Atvinnulausir 9.500 2.700 7.100 2.400 5.400 2.400
Utan vinnumarkaðar 41.600 4.900 44.500 5.400 42.000 6.000
Áætlaður mannfjöldi 229.600 230.900 239.600
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
  maí.16 jún.16 júl.16 ágú.16 sep.16 okt.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,7 83,3 83,1 84,2 83,9 83,2
Hlutfall starfandi 82,0 81,2 80,7 81,6 81,2 80,8
Atvinnuleysi 2,1 2,5 2,9 3,1 3,2 2,9
Vinnustundir 40,3 39,8 39,8 39,7 40,4 40,1
Vinnuafl 195.300 193.200 195.300 197.400 198.700 199.600
Starfandi 191.200 188.400 189.600 191.400 192.200 193.800
Atvinnulausir 4.100 4.800 5.700 6.100 6.400 5.800
Utan vinnumarkaðar 38.000 38.900 39.700 37.100 38.000 40.400
Áætlaður mannfjöldi 233.300 232.100 235.000 234.500 236.700 240.000
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
  maí.16 jún.16 júl.16 ágú.16 sep.16 okt.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,3 83,4 83,6 83,7 83,7 83,8
Hlutfall starfandi 80,8 81,0 81,1 81,2 81,3 81,3
Atvinnuleysi 3,0 2,9 2,9 2,9 2,9 2,9
Vinnustundir 40,2 40,1 40,0 40,0 40,1 40,1
Vinnuafl 195.300 195.800 196.500 197.300 198.000 198.600
Starfandi 189.500 190.100 190.700 191.500 192.300 192.900
Atvinnulausir 5.800 5.700 5.800 5.800 5.800 5.700
Utan vinnumarkaðar 39.300 38.900 38.700 38.500 38.500 38.500
Áætlaður mannfjöldi 234.600 234.800 235.200 235.800 236.600 237.100

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.