FRÉTT VINNUMARKAÐUR 22. DESEMBER 2015

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 194.900 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í nóvember 2015, sem jafngildir 83,2% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 188.100 starfandi og 6.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 80,3% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,5%. Samanburður mælinga fyrir nóvember 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um 2,4 prósentustig og hlutfall starfandi fólks jókst um tvö prósentustig. Samanburðurinn sýnir aukningu í hlutfalli atvinnuleysis, en það jókst um 0,4 prósentustig frá því í nóvember 2014, úr 3,1% í 3,5% af vinnuaflinu.

Flæðirit – Vinnumarkaður 16-74 ára nóvember 2015



Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 4% í nóvember
Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 195.800 í nóvember 2015 sem jafngildir 83,5% atvinnuþátttöku, sem er 1,3 prósentustigum hærri en hún var í október. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu þá stóð bæði hlutfall og fjöldi atvinnulausra nánast í stað á milli október og nóvember eða 7.800 manns sem jafngildir 4% atvinnuleysi. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í nóvember 2015 var 80,2% og jókst um 1,3 prósentustig frá því í október. Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi stendur í stað og hlutfall starfandi og atvinnuþátttaka jókst um 0,3 prósentustig. Þróun síðustu 12 mánaða sýnir að atvinnuleysi hefur lækkað um 0,2 prósentustig og að bæði hlutfall starfandi og atvinnuþátttaka hefur aukist um 0,3 stig.

 

Framkvæmd og aðferð
Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglulega í tilteknum mánuðum, eins og sjá má á myndunum hér að framan, og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum. Árstíðaleiðrétting er tölfræðileg aðferð sem leitast við að aðgreina árstíðabundnar sveiflur frá óreglulegum breytingum. Árstíðaleiðréttingin gerir samanburð á milli samliggjandi mánaða mun raunhæfari og segir betur um hvert tölurnar stefna. Vegna eðli árstíðaleiðréttinga hafa nýjar mælingar áhrif á alla tímaröðina. Hagstofa Íslands notar Tramo-Seats aðferð við árstíðaleiðréttingu. Allar tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungs eru bráðabrigðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Nóvember 2015 nær til fjögurra vikna, eða frá 2. til 29. nóvember. Úrtakið var 1.235 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.193 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 890 einstaklingum sem jafngildir 74,6% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,4, hlutfall starfandi ±2,6 og atvinnuleysi ±1,3. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í nóvember - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2013 (±95%)  2014 (±95%)  2015 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 79,6 2,5 80,8 2,5 83,2 2,4
Hlutfall starfandi 76,3 2,6 78,3 2,6 80,3 2,6
Atvinnuleysi 4,2 1,4 3,1 1,3 3,5 1,3
Vinnustundir 40,3 1,2 41,3 1,2 40,4 1,3
Vinnuafl 182.300 5.700 185.400 5.700 194.900 5.600
Starfandi 174.600 6.000 179.600 6.000 188.100 6.000
Atvinnulausir 7.700 2.600 5.700 2.300 6.800 2.600
Utan vinnumarkaðar 46.600 5.700 44.100 5.700 39.500 5.600
Áætlaður mannfjöldi 228.800 229.400 234.400

Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
   
  jún.15 júl.15 ágú.15 sep.15 okt.15 nóv.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,2 81,8 83,4 82,9 82,2 83,5
Hlutfall starfandi 80,5 78,4 79,9 79,3 78,9 80,2
Atvinnuleysi 3,3 4,2 4,3 4,3 4,1 4,0
Vinnustundir 40,1 40,2 39,9 40,3 40,4 40,1
Vinnuafl 190.700 189.000 192.600 191.500 192.500 195.800
Starfandi 184.400 181.100 184.400 183.200 184.700 187.900
Atvinnulausir 6.300 7.900 8.200 8.200 7.900 7.800
Utan vinnumarkaðar 38.400 42.100 38.300 39.500 41.600 38.700
Áætlaður mannfjöldi 229.200 231.100 230.900 230.900 234.100

234.500

Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
   
  jún.15 júl.15 ágú.15 sep.15 okt.15 nóv.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,6 82,6 82,6 82,7 82,8 82,9
Hlutfall starfandi 79,2 79,2 79,2 79,3 79,4 79,6
Atvinnuleysi 4,1 4,1 4,1 4,1 4,1 4,1
Vinnustundir 40,1 40,1 40,1 40,2 40,2 40,2
Vinnuafl 192.000 191.900 191.900 192.300 193.000 193.800
Starfandi 184.200 184.000 184.100 184.400 185.100 185.900
Atvinnulausir 7.800 7.900 7.900 7.900 7.900 7.900
Utan vinnumarkaðar 40.400 40.400 40.400 40.300 40.100 39.800
Áætlaður mannfjöldi 232.400 232.300 232.400 232.700 233.100 233.700

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.