FRÉTT VINNUMARKAÐUR 10. ÁGÚST 2017

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 205.800 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í júní 2017, sem jafngildir 85,5% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 201.100 starfandi og 4.700 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 83,5% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,3%. Samanburður mælinga fyrir júní 2016 og 2017 sýnir mjög litlar breytingar milli ára. Atvinnuþátttaka jókst lítillega eða um 0,3 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 4.700 manns og hlutfall starfandi af mannfjölda hækkaði um 0,2 stig. Staða atvinnuleysis er svipuð á milli ára, en atvinnulausir voru í júní 2017 um 300 fleiri en í júní 2016 og hlutfallið nánast það sama.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, júní 2017

Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 2,5% í júní
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 197.600 í júní 2017 sem jafngildir 82,6% atvinnuþátttöku, sem er lækkun um 0,4 prósentustig frá maí 2017. Fjöldi atvinnulausra í júní var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 5.000 og fækkaði um 600 manns frá áætluðum fjölda atvinnulausra í maí. Hlutfall atvinnulausra lækkaði því á milli maí og júní 2017 um 0,3 stig, úr 2,8% í 2,5%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í júní 2017 var 80,5%, sem er litlu lægra en í maí eða sem nemur 0,2 stigum. Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að þær nánast standa í stað hvort sem litið er til atvinnuleysis eða starfandi fólks.





Framkvæmd
Júní 2017 nær til fimm vikna, eða frá 29. maí til 2. júlí. Úrtakið var 1.511 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.480 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.002 einstaklingum sem jafngildir 67,7% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,1 stig, hlutfall starfandi ±2,2 stig og atvinnuleysi ±1,1 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í júní — mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2015 (±95%)  2016 (±95%)  2017 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 86,6 2 85,2 2 85,5 2,1
Hlutfall starfandi 84,1 2,2 83,4 2,2 83,5 2,2
Atvinnuleysi 2,9 1,2 2,2 1,1 2,3 1,1
Vinnustundir 42,5 1,3 41,9 1,2 41,6 1,2
Vinnuafl 202.200 4.700 200.800 4.800 205.800 4.900
Starfandi 196.400 5.100 196.400 5.100 201.100 5.300
Atvinnulausir 5.800 2.300 4.400 2.000 4.700 2.200
Utan vinnumarkaðar 31.300 4.700 34.800 4.800 35.000 4.900
Áætlaður mannfjöldi 233.500 235.600 240.800
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
  jan.17 feb.17 mar.17 apr.17 maí.17 jún.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,9 83,8 84,7 83,7 83,0 82,6
Hlutfall starfandi 80,0 81,3 83,3 81,9 80,7 80,5
Atvinnuleysi 3,5 3,1 1,7 2,2 2,8 2,5
Vinnustundir 40,4 40,1 40,2 40,5 40,5 40,1
Vinnuafl 198.800 200.400 202.100 200.700 198.600 197.600
Starfandi 191.900 194.200 198.800 196.400 193.000 192.600
Atvinnulausir 7.000 6.200 3.400 4.300 5.600 5.000
Utan vinnumarkaðar 41.100 38.600 36.400 39.100 40.600 41.500
Áætlaður mannfjöldi 239.900 239.000 238.500 239.900 239.200 239.200
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
  jan.17 feb.17 mar.17 apr.17 maí.17 jún.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,5 83,6 83,7 83,6 83,5 83,4
Hlutfall starfandi 81,2 81,3 81,5 81,4 81,3 81,2
Atvinnuleysi 2,8 2,7 2,6 2,6 2,6 2,6
Vinnustundir 40,2 40,2 40,3 40,3 40,3 40,2
Vinnuafl 199.000 199.900 200.500 200.300 199.400 198.900
Starfandi 193.500 194.500 195.200 195.000 194.200 193.700
Atvinnulausir 5.500 5.400 5.300 5.200 5.200 5.300
Utan vinnumarkaðar 39.300 39.200 39.100 39.200 39.500 39.600
Áætlaður mannfjöldi 238.400 239.100 239.600 239.500 239.000 238.500

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.