FRÉTT VINNUMARKAÐUR 24. ÁGÚST 2017

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 201.900 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í júlí 2017, sem jafngildir 83,3% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 199.800 starfandi og 2.100 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 82,5% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 1%, sem er lægsta mæling frá því að samfelldar mælingar Hagstofunnar hófust árið 2003. Samanburður mælinga fyrir júlí 2016 og 2017 sýna að atvinnuþátttaka dróst saman um 2,5 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 1.900 manns en hlutfall starfandi af mannfjölda minnkaði um 1,6 stig. Atvinnulausir eru nú 2.000 færri en í júlí 2016 og hlutfallið þá var 2%. Þeir sem standa utan vinnumarkaðar samkvæmt mælingunni eru 40.400 sem er um 6.900 fleiri en í júlí 2016 en þá voru þeir 33.500.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára júní 2017



Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 1,8% í júlí
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 197.100 í júlí 2017 sem jafngildir 81,1% atvinnuþátttöku, sem er lækkun um 1,8 prósentustig frá júní 2017. Fjöldi atvinnulausra í júlí var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 3.600 og fækkaði um 1.400 manns frá áætluðum fjölda atvinnulausra í júní. Hlutfall atvinnulausra lækkaði því á milli júní og júlí 2017 um 0,7 stig, úr 2,5% í 1,8%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í júní 2017 var 79,6%, sem er lægra en í júní eða sem nemur 1,2 stigum. Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuþátttaka hefur dregist saman um 0,5 stig. Hlutfall starfandi stendur nánast í stað og dregið hefur úr atvinnuleysi um 0,7 stig.

 

 

 


Framkvæmd
Júlí 2017 nær til fjögurra vikna, eða frá 3. til 30. júlí. Úrtakið var 1.217 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.188 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 789 einstaklingum sem jafngildir 66,4% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,5 stig, hlutfall starfandi ±2,6 stig og atvinnuleysi ±0,8 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði. Tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungsins eru bráðabirgðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í júlí — mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2015 (±95%)  2016 (±95%)  2017 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 84,3 2 85,8 2,2 83,3 2,5
Hlutfall starfandi 81,8 2,2 84,0 2,4 82,5 2,6
Atvinnuleysi 3,0 1,1 2,0 0,8 1,0 0,8
Vinnustundir 43,0 1,3 42,5 1,5 41,8 1,3
Vinnuafl 195.400 4.700 202.000 5.200 201.900 6.100
Starfandi 189.500 5.100 197.900 5.600 199.800 6.300
Atvinnulausir 5.900 2.100 4.100 2.200 2.100 1.600
Utan vinnumarkaðar 36.300 4.700 33.500 5.200 40.400 6.100
Áætlaður mannfjöldi 231.700 235.500 242.300
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
  feb.17 mar.17 apr.17 maí.17 jún.17 júl.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,7 85,0 83,5 83,2 82,9 81,1
Hlutfall starfandi 81,2 83,6 81,8 80,9 80,8 79,6
Atvinnuleysi 3,1 1,7 2,1 2,8 2,5 1,8
Vinnustundir 39,9 40,1 40,5 40,2 39,9 39,5
Vinnuafl 200.300 202.000 200.600 198.400 197.500 194.700
Starfandi 194.200 198.600 196.300 192.900 192.500 191.100
Atvinnulausir 6.100 3.300 4.300 5.500 5.000 3.600
Utan vinnumarkaðar 38.900 35.600 39.500 40.000 40.800 45.500
Áætlaður mannfjöldi 239.200 237.600 240.100 238.500 238.300 240.100
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
  feb.17 mar.17 apr.17 maí.17 jún.17 júl.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,4 83,5 83,4 83,2 83,0 82,9
Hlutfall starfandi 81,2 81,3 81,2 81,0 81,3 81,2
Atvinnuleysi 2,7 2,6 2,6 2,6 2,1 2,0
Vinnustundir 40,1 40,1 40,1 40,0 39,9 39,8
Vinnuafl 199.600 200.200 199.900 199.000 197.200 197.100
Starfandi 194.200 195.000 194.700 193.800 193.100 193.000
Atvinnulausir 5.400 5.300 5.200 5.200 4.000 4.000
Utan vinnumarkaðar 39.600 39.600 39.800 40.200 40.500 40.600
Áætlaður mannfjöldi 239.300 239.800 239.700 239.200 237.700 237.600

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.