FRÉTT VINNUMARKAÐUR 24. FEBRÚAR 2016

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 192.500 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í janúar 2016, sem jafngildir 81,7% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 187.200 starfandi og 5.400 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,5% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,8%. Samanburður mælinga í janúar 2015 og 2016 sýnir að það fjölgaði í vinnuaflinu um 7.700 manns, atvinnuþátttakan jókst því um 1,6 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 10.400 og hlutfallið af mannfjölda um 2,8 stig. Atvinnulausum fækkaði um 2.600 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu minnkaði um 1,5 stig.

Flæðirit Vinnumarkaður 16–74 ára í janúar 2016



Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 2,5% í janúar
Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 196.100 í janúar 2016 sem jafngildir 83,2% atvinnuþátttöku, sem er 0,8 prósentustigum hærri en hún var í desember 2015. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var hlutfall starfandi fólks 81,1% og jókst um 0,4 prósentustig á milli desember 2015 og janúar 2016. Á sama tíma jókst hlutfall atvinnulausra um 0,4 stig, úr 2,1% í 2,5%. Þegar horft á síðustu sex mánuði þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnulausum fækkaði um 1.100 á meðan starfandi fólki fjölgaði um 4.400.

 

Framkvæmd og aðferð
Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglulega í tilteknum mánuðum, eins og sjá má á myndunum hér að framan, og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum. Árstíðaleiðrétting er tölfræðileg aðferð sem leitast við að aðgreina árstíðabundnar sveiflur frá óreglulegum breytingum. Árstíðaleiðréttingin gerir samanburð á milli samliggjandi mánaða mun raunhæfari og segir betur um hvert tölurnar stefna. Vegna eðli árstíðaleiðréttinga hafa nýjar mælingar áhrif á alla tímaröðina. Hagstofa Íslands notar Tramo-Seats aðferð við árstíðaleiðréttingu. Allar tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungs eru bráðabrigðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Janúar 2016 nær til fjögurra vikna, eða frá 4. til 31. janúar. Úrtakið var 1.215 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.170 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 908 einstaklingum sem jafngildir 77,6% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,4, hlutfall starfandi ±2,6 og atvinnuleysi ±1,2. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði. 

Tafla 1. Vinnumarkaður í janúar  mæling
    Öryggisbil   Öryggisbil   Öryggisbil
  2014 (±95%) 2015 (±95%) 2016 (±95%)
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 79,3 2,2 80,1 2,2 81,7 2,4
Hlutfall starfandi 73,9 2,4 76,7 2,3 79,5 2,6
Atvinnuleysi 6,8 1,6 4,3 1,2 2,8 1,2
Vinnustundir 36,2 1,1 38,0 1,2 39,2 1,3
Vinnuafl 181.400 5.100 184.800 5.100 192.500 5.700
Starfandi 169.000 5.600 176.800 5.400 187.200 6.100
Atvinnulausir 12.400 2.900 8.000 2.400 5.400 2.400
Utan vinnumarkaðar 47.500 5.100 45.800 5.100 43.000 5.700
Áætlaður mannfjöldi 228.900 230.600 235.600

 

Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
   
  Ág.15 Sept.15 Okt.15 Nóv.15 Des.15 Jan.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,4 82,8 82,0 83,2 82,4 83,2
Hlutfall starfandi 79,9 79,3 78,7 79,8 80,7 81,1
Atvinnuleysi 4,2 4,3 4,0 4,0 2,1 2,5
Vinnustundir 40,0 40,4 40,5 40,4 40,5 40,8
Vinnuafl 192.500 190.500 190.300 194.400 190.900 196.100
Starfandi 184.300 182.300 182.600 186.600 186.900 191.200
Atvinnulausir 8.200 8.200 7.700 7.800 4.000 4.900
Utan vinnumarkaðar 38.300 39.500 41.700 39.300 40.800 39.700
Áætlaður mannfjöldi 230.800 230.000 232.000 233.700 231.700 235.900

 

Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
   
  Ág.15 Sept.15 Okt.15 Nóv.15 Des.15 Jan.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,5 82,5 82,6 82,7 82,7 82,8
Hlutfall starfandi 79,4 79,4 79,6 79,8 80,0 80,2
Atvinnuleysi 3,8 3,8 3,6 3,5 3,3 3,2
Vinnustundir 40,2 40,3 40,4 40,4 40,5 40,5
Vinnuafl 191.000 190.900 191.400 192.400 193.500 194.200
Starfandi 183.700 183.700 184.400 185.800 187.200 188.100
Atvinnulausir 7.300 7.200 7.000 6.700 6.300 6.200
Utan vinnumarkaðar 40.400 40.400 40.300 40.300 40.400 40.400
Áætlaður mannfjöldi 231.400 231.300 231.700 232.700 233.900 234.600

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.