Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var fjöldi fólks á vinnumarkaði 206.600 í febrúar 2019. Árstíðarleiðrétt atvinnuþátttaka var 80,8%, sem er 1,9 prósentustigum minna en í janúar. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu voru atvinnulausir 6.700 í febrúar, eða 3,3%, sem er 0,5 prósentustigum hærra en í janúarmánuði. Fyrir sama tímabil minnkaði leiðrétt hlutfall starfandi fólks um 2,2 prósentustig, eða í 78,1% fyrir febrúar 2019.

Þegar horft er til síðustu sex mánaða sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuþátttaka dróst saman um 0,1 prósentustig. Hlutfall starfandi minnkaði um 0,3 prósentustig og atvinnuleysi jókst um tæp 0,2 prósentustig.

Samkvæmt óleiðréttum mælingum voru að jafnaði 200.700 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í febrúar 2019. Það jafngildir 79,0% (±2,6) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu reyndust 194.000 (±6.500) vera starfandi og 6.700 (±2.900) án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 76,4% (±2,7) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,3% (±1,4).

Samanburður mælinga fyrir febrúar 2018 og 2019 sýnir að í vinnuafli fjölgaði um 4.200 manns, á meðan hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 0,4 prósentustig. Starfandi fólki fjölgaði um 2.300, en hlutfallið lækkaði um 1,1 prósentustig, frá því á sama tíma árið 2018.

Atvinnulausir í febrúar 2019 voru um 1.900 fleiri en á sama tíma 2018 þegar þeir voru 4.800 eða 2,4% af vinnuaflinu. Alls voru 53.300 utan vinnumarkaðar í febrúar 2019 en í febrúar 2018 voru þeir 51.000.

Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, febrúar 2019 – Mæling Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar. Öryggisbil (95%), atvinnuleysi: Alls ±1,4; karlar ±2,2; konur ±1,7

Tafla 1. Vinnumarkaður í febrúar — mæling
Öryggisbil Öryggisbil Öryggisbil
 2017 (±95%)2018 (±95%)2019 (±95%)
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka 82,9 2,5 79,4 2,5 79,0 2,6
Hlutfall starfandi 80,4 2,7 77,5 2,6 76,4 2,7
Atvinnuleysi 3,0 1,4 2,4 1,1 3,3 1,4
Vinnustundir 39,3 1,4 38,7 1,2 38,8 1,2
Vinnuafl 197.400 6.100 196.500 6.100 200.700 6.500
Starfandi 191.300 6.500 191.700 6.400 194.000 6.900
Atvinnulausir 6.000 2.800 4.800 2.200 6.700 2.900
Utan vinnumarkaðar 40.800 6.100 51.000 6.100 53.300 6.500
Áætlaður mannfjöldi 238.100 247.500 254.000

Tafla 2. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði árstíðaleiðrétting
 sep.18okt.18nóv.18des.18jan.19feb.19
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka 81,6 81,6 82,6 80,8 82,7 80,8
Hlutfall starfandi 80,2 79,1 79,7 79,4 80,4 78,1
Atvinnuleysi 1,8 3,1 3,5 1,7 2,8 3,3
Vinnustundir 38,7 39,6 38,7 38,8 40,0 39,1
Vinnuafl 205.500 206.600 209.600 204.200 208.100 206.600
Starfandi 201.800 200.200 202.200 200.700 202.300 199.800
Atvinnulausir 3.700 6.400 7.400 3.500 5.800 6.700
Utan vinnumarkaðar 46.300 46.500 44.200 48.500 43.600 49.100
Áætlaður mannfjöldi 251.700 253.100 253.800 252.700 251.700 255.700

Tafla 3. Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði árstíðaleiðrétt leitni
 sep.18okt.18nóv.18des.18jan.19feb.19
Alls 1674 ára
Atvinnuþátttaka 81,8 81,8 81,8 81,7 81,7 81,7
Hlutfall starfandi 79,7 79,6 79,6 79,5 79,4 79,4
Atvinnuleysi 2,7 2,7 2,7 2,7 2,8 2,8
Vinnustundir 39,6 39,4 39,3 39,3 39,4 39,5
Vinnuafl 205.900 206.300 206.500 206.600 206.700 206.600
Starfandi 200.400 200.800 200.900 201.000 200.900 200.700
Atvinnulausir 5.500 5.500 5.600 5.600 5.800 5.900
Utan vinnumarkaðar 45.700 45.900 46.000 46.200 46.300 46.300
Áætlaður mannfjöldi 251.600 252.100 252.500 252.800 252.900 252.900

Um gögnin
Vinnumarkaðsrannsóknin í febrúar 2019 nær til fjögurra vikna, frá 4. febrúar til og með 3. mars 2019. Í úrtak völdust af handahófi 1.527 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.487 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 950 einstaklingum og jafngildir það 63,9% svarhlutfalli.

Talnaefni