FRÉTT VINNUMARKAÐUR 23. MARS 2017

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 199.300 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í febrúar 2017, sem jafngildir 82,8% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 192.900 starfandi og 6.500 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 80,1% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,2%. Samanburður mælinga fyrir febrúar 2016 og 2017 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um 0,7 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 7.800 manns og hlutfall starfandi af mannfjölda um 0,5 stig. Atvinnulausum fækkaði um 600 manns en hlutfall þeirra af vinnuaflinu stendur nánast í stað.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára febrúar 2017


Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 3,1% í febrúar
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 200.300 í febrúar 2017 sem jafngildir 83,4% atvinnuþátttöku, sem er aukning um 0,7 prósentustig frá janúar 2017. Fjöldi atvinnulausra í febrúar var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 6.300 og hefur fækkað um 800 manns frá áætluðum fjölda atvinnulausra í janúar. Hlutfall atvinnulausra lækkaði því á milli janúar og febrúar 2017 um 0,4 stig, úr 3,5% í 3,1%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í febrúar 2017 var 80,8%, sem er einu stigi hærra en í janúar. Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi hefur nánast staðið í stað, en á síðustu tólf mánuðum hefur það lækkað lítillega eða um 0,2 prósentustig. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur einnig lækkað lítillega eða um 0,2 stig, en aftur á móti aukist um 0,6 stig þegar horft er til þróunar síðustu tólf mánaða.

 

Framkvæmd
Febrúar 2016 nær til fjögurra vikna, eða frá 30. janúar til 26. febrúar 2017. Úrtakið var 1.202 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.162 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 816 einstaklingum sem jafngildir 70,2% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,5 stig, hlutfall starfandi ±2,7 stig og og atvinnuleysi ±1,4 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði. Áætlaðar tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungs eru bráðabirgðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í febrúar - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2015 (±95%)  2016 (±95%)  2017 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 80,8 2,5 82,1 2,5 82,8 2,5
Hlutfall starfandi 77,2 2,7 79,6 2,6 80,1 2,7
Atvinnuleysi 4,5 1,5 3,1 1,4 3,2 1,4
Vinnustundir 39,7 1,3 39,9 1,3 39,2 1,4
Vinnuafl 186.900 5.700 190.900 5.800 199.300 6.100
Starfandi 178.500 6.200 185.100 6.200 192.900 6.500
Atvinnulausir 8.400 2.900 5.900 2.600 6.500 2.800
Utan vinnumarkaðar 44.400 5.700 41.700 5.800 41.500 6.100
Áætlaður mannfjöldi 231.300 232.600 240.800
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
  sep.16 okt.16 nóv.16 des.16 jan.17 feb.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 84,1 83,2 84,5 84,0 82,7 83,4
Hlutfall starfandi 81,2 80,8 82,1 81,6 79,8 80,8
Atvinnuleysi 3,4 2,9 2,8 2,8 3,5 3,1
Vinnustundir 40,4 40,0 40,1 40,1 40,5 39,9
Vinnuafl 198.900 197.800 200.000 199.000 199.800 200.300
Starfandi 192.100 192.100 194.400 193.400 192.700 194.000
Atvinnulausir 6.800 5.700 5.700 5.600 7.100 6.300
Utan vinnumarkaðar 37.600 39.800 36.700 38.000 41.800 39.800
Áætlaður mannfjöldi 236.400 237.600 236.800 237.000 241.500 240.100
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
  sep.16 okt.16 nóv.16 des.16 jan.17 feb.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,7 83,7 83,6 83,5 83,4 83,4
Hlutfall starfandi 81,2 81,2 81,1 81,0 80,9 80,9
Atvinnuleysi 3,0 3,0 3,0 3,0 2,9 2,9
Vinnustundir 40,1 40,1 40,1 40,1 40,1 40,1
Vinnuafl 197.900 198.500 198.900 199.000 199.000 199.200
Starfandi 191.900 192.500 193.000 193.100 193.100 193.400
Atvinnulausir 6.000 6.000 5.900 5.900 5.900 5.800
Utan vinnumarkaðar 38.500 38.600 38.900 39.400 39.700 39.700
Áætlaður mannfjöldi 236.400 237.100 237.900 238.400 238.700 239.000

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.