FRÉTT VINNUMARKAÐUR 26. JANÚAR 2017

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 197.000 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í desember 2016, sem jafngildir 83% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 191.900 starfandi og 5.100 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 80,8% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,6%. Samanburður mælinga fyrir desember 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan jókst um tvö prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 7.000 og hlutfallið af mannfjölda hækkaði um 1,4 stig. Atvinnulausum fjölgaði um 1.500 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu hækkaði um 0,7 prósentustig.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára desember 2016



Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 2,9% í desember
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 200.300 í desember 2016 sem jafngildir 84,4% atvinnuþátttöku, sem er lækkun um 0,3 prósentustig frá nóvember. Fjöldi atvinnulausra í desember var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 5.900, sem er aðeins um hundrað manns færra en í áætluðum tölum fyrir nóvember. Hlutfall atvinnulausra lækkaði því lítillega á milli nóvember og desember eða um 0,l stig, úr 3,0% í 2,9%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í desember 2016 var 81,9%, sem er 0,3 stigum lægra en í nóvember. Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi stendur nánast alveg í stað, en á síðustu tólf mánuðum hefur það lækkað um 0,4 prósentustig. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aftur á móti aukist lítillega eða um 0,4 stig og um 1,4 stig síðustu tólf mánuði.

 

Framkvæmd
Desember 2016 nær til fimm vikna, eða frá 28. nóvember til 1. janúar 2017. Úrtakið var 1.513 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.469 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.056 einstaklingum sem jafngildir 71,9% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,2 stig, hlutfall starfandi ±2,3 stig og og atvinnuleysi ±1,1 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í desember - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2014 (±95%)  2015 (±95%)  2016 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 80,0 2,5 81,0 2,5 83,0 2,2
Hlutfall starfandi 76,6 2,7 79,4 2,6 80,8 2,3
Atvinnuleysi 4,3 1,5 1,9 1,1 2,6 1,1
Vinnustundir 36,9 1,4 37,7 1,3 37,7 1,2
Vinnuafl 183.700 5.800 188.500 5.900 197.000 5.200
Starfandi 175.800 6.200 184.900 6.100 191.900 5.500
Atvinnulausir 7.900 2.800 3.600 1.900 5.100 2.200
Utan vinnumarkaðar 45.900 5.800 44.200 5.900 40.400 5.200
Áætlaður mannfjöldi 229.600 232.700 237.300
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
  júl.16 ágú.16 sep.16 okt.16 nóv.16 des.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,0 84,0 84,1 83,2 84,7 84,4
Hlutfall starfandi 80,6 81,4 81,4 80,8 82,2 81,9
Atvinnuleysi 2,9 3,0 3,2 2,8 3,0 2,9
Vinnustundir 39,8 39,8 40,4 40,1 40,0 40,1
Vinnuafl 195.200 197.000 198.500 197.400 200.900 200.300
Starfandi 189.600 191.100 192.000 191.800 194.900 194.400
Atvinnulausir 5.600 6.000 6.400 5.600 6.000 5.900
Utan vinnumarkaðar 40.100 37.600 37.500 40.000 36.200 37.000
Áætlaður mannfjöldi 235.300 234.600 236.000 237.400 237.200 237.300
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
  júl.16 ágú.16 sep.16 okt.16 nóv.16 des.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,6 83,7 83,8 83,8 83,9 84,0
Hlutfall starfandi 81,2 81,3 81,4 81,4 81,5 81,6
Atvinnuleysi 2,9 2,9 2,9 2,9 2,8 2,8
Vinnustundir 40,0 40,0 40,1 40,1 40,0 40,0
Vinnuafl 196.300 197.000 197.700 198.400 199.200 199.900
Starfandi 190.600 191.200 191.900 192.700 193.600 194.200
Atvinnulausir 5.700 5.800 5.800 5.700 5.700 5.600
Utan vinnumarkaðar 38.400 38.300 38.200 38.200 38.200 38.100
Áætlaður mannfjöldi 234.700 235.200 235.900 236.600 237.400 238.000

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.