FRÉTT VINNUMARKAÐUR 24. MAÍ 2017

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 199.300 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í apríl 2017, sem jafngildir 83,2% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 192.900 starfandi og 6.400 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 80,5% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,2%. Samanburður mælinga fyrir apríl 2016 og 2017 sýnir að þrátt fyrir að fjöldi fólks á vinnumarkaði hafi aukist um 3.500 þá lækkaði atvinnuþátttaka um 0,6 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 6.600 manns og hlutfall starfandi af mannfjölda um 0,8 stig. Atvinnulausum fækkaði um 3.100 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 1,6 stig. Á vormánuðum eykst venjulega eftirspurn ungs fólks eftir atvinnu og er það vel merkjanlegt í þessari mælingu. Af öllum atvinnulausum í apríl voru 52% á aldrinum 16-24 ára og var atvinnuleysi á meðal þeirra 9,7%.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára apríl 2017



Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 2,3% í apríl
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 202.700 í apríl 2017 sem jafngildir 84,1% atvinnuþátttöku, sem er lækkun um 0,6 prósentustig frá mars 2017. Fjöldi atvinnulausra í apríl var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 4.600 og hefur fjölgað um 1.400 manns frá áætluðum fjölda atvinnulausra í mars. Hlutfall atvinnulausra hækkaði því á milli mars og apríl 2017 um 0,7 stig, úr 1,6% í 2,3%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í apríl 2017 var 82,2%, sem er 1,2 stigum lægra en í mars. Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi hefur lækkað um 0,4 prósentustig, en á síðustu tólf mánuðum hefur það lækkað um 0,6 stig. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur hækkað um 0,7 stig og þegar horft er til þróunar síðustu tólf mánaða hefur hlutfallið aukist um 1,3 stig.

 

 

Framkvæmd
Apríl 2017 nær til fjögurra vikna, eða frá 3. til 30. apríl. Úrtakið var 1.216 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.181 einstaklingur. Alls fengust nothæf svör frá 800 einstaklingum sem jafngildir 67,7% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,6 stig, hlutfall starfandi ±2,7 stig og og atvinnuleysi ±1,4 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði. Tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungsins eru bráðabirgðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í apríl - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2015 (±95%)  2016 (±95%)  2017 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,0 2,1 83,8 2,3 83,2 2,6
Hlutfall starfandi 77,5 2,3 79,7 2,6 80,5 2,7
Atvinnuleysi 5,6 1,4 4,8 1,4 3,2 1,4
Vinnustundir 37,2 1,2 39,6 1,3 38,1 1,5
Vinnuafl 190.600 4.800 195.800 5.500 199.300 6.100
Starfandi 180.000 5.300 186.300 6.100 192.900 6.600
Atvinnulausir 10.600 2.600 9.500 3.100 6.400 2.800
Utan vinnumarkaðar 41.800 4.800 37.900 5.500 40.300 6.100
Áætlaður mannfjöldi 232.400 233.700 239.600
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
  nóv.16 des.16 jan.17 feb.17 mar.17 apr.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 84,5 83,9 83,0 83,8 84,7 84,1
Hlutfall starfandi 82,1 81,6 80,2 81,4 83,4 82,2
Atvinnuleysi 2,8 2,8 3,4 2,9 1,6 2,3
Vinnustundir 40,1 40,2 40,4 40,0 40,0 40,4
Vinnuafl 200.100 198.700 198.700 199.900 202.000 202.700
Starfandi 194.500 193.100 192.000 194.100 198.800 198.100
Atvinnulausir 5.600 5.500 6.700 5.900 3.200 4.600
Utan vinnumarkaðar 36.800 38.100 40.600 38.500 36.400 38.200
Áætlaður mannfjöldi 236.900 236.700 239.300 238.500 238.400 240.900
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
  nóv.16 des.16 jan.17 feb.17 mar.17 apr.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,8 83,7 83,6 83,8 84,0 84,2
Hlutfall starfandi 81,5 81,4 81,4 81,6 81,9 82,1
Atvinnuleysi 2,8 2,7 2,7 2,6 2,5 2,4
Vinnustundir 40,2 40,2 40,2 40,2 40,2 40,2
Vinnuafl 198.800 198.900 199.100 200.000 201.200 202.000
Starfandi 193.300 193.400 193.800 194.900 196.200 197.000
Atvinnulausir 5.500 5.400 5.300 5.200 5.000 4.900
Utan vinnumarkaðar 38.500 38.800 38.900 38.700 38.200 37.900
Áætlaður mannfjöldi 237.300 237.700 238.100 238.700 239.400 239.900

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.