FRÉTT VINNUMARKAÐUR 28. SEPTEMBER 2017

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 200.800 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í ágúst 2017, sem jafngildir 83,1% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 195.800 starfandi og 5.000 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 81% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,5%. Samanburður mælinga fyrir ágúst 2016 og 2017 sýna að atvinnuþátttaka dróst saman um 2,3 prósentustig úr 85,3% í ágúst 2016. Fjöldi starfandi er nánast alveg sá sami í fjölda talið en hlutfall starfandi af mannfjölda minnkaði um 1,9 stig. Atvinnulausir voru þó 800 færri en í ágúst 2016 þegar hlutfallið var 2,9%. Þeir sem standa utan vinnumarkaðar samkvæmt mælingunni eru 40.900 sem er um 6.300 fleiri en í ágúst 2016 en þá voru þeir 34.600.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára ágúst 2017



Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 2,7% í ágúst
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 196.400 í ágúst 2017 sem jafngildir 82% atvinnuþátttöku, sem er hækkun um 0,4 prósentustig frá júlí 2017. Fjöldi atvinnulausra í ágúst var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 5.300 og fjölgaði um 1.300 manns frá áætluðum fjölda atvinnulausra í júlí. Hlutfall atvinnulausra hækkaði því á milli júlí og ágúst 2017 um 0,6 stig, úr 2,1% í 2,7%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í ágúst 2017 var 79,8%, sem sem er nánast óbreytt frá júlímánuði. Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuþátttaka hefur dregist saman um 0,6 stig og hlutfall starfandi lækkað um 0,6 stig. Atvinnuleysi stendur hins vegar nánast í stað.

 

Framkvæmd
Ágúst 2017 nær til fimm vikna, eða frá 31. júlí til 3. september. Úrtakið var 1.507 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.466 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.020 einstaklingum sem jafngildir 69,6% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,2 stig, hlutfall starfandi ±2,4 stig og atvinnuleysi ±1,2 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði. Tölur fyrir fyrstu tvo mánuði nýjasta ársfjórðungsins eru bráðabirgðatölur þar til ársfjórðungi lýkur.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í ágúst — mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2015 (±95%)  2016 (±95%)  2017 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 84,2 2,3 85,3 2,3 83,1 2,2
Hlutfall starfandi 81,1 2,5 82,9 2,5 81,0 2,4
Atvinnuleysi 3,7 1,4 2,9 1,2 2,5 1,2
Vinnustundir 40,8 1,3 40,3 1,3 40,7 1,3
Vinnuafl 194.700 5.300 201.500 5.500 200.800 5.500
Starfandi 187.500 5.700 195.700 5.900 195.800 5.800
Atvinnulausir 7.200 2.700 5.800 2.600 5.000 2.400
Utan vinnumarkaðar 36.500 5.300 34.600 5.500 40.900 5.500
Áætlaður mannfjöldi 231.200 236.200 241.700
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
  mar.17 apr.17 maí.17 jún.17 júl.17 ágú.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 84,7 83,6 82,9 82,6 81,6 82,0
Hlutfall starfandi 83,3 81,8 80,5 80,5 79,9 79,8
Atvinnuleysi 1,7 2,2 2,8 2,6 2,1 2,7
Vinnustundir 40,0 40,5 40,2 39,9 39,4 39,7
Vinnuafl 202.000 200.600 198.300 197.900 195.000 196.400
Starfandi 198.600 196.300 192.700 192.800 191.000 191.200
Atvinnulausir 3.400 4.300 5.600 5.100 4.000 5.300
Utan vinnumarkaðar 36.400 39.400 41.000 41.700 44.000 43.200
Áætlaður mannfjöldi 238.300 240.000 239.300 239.600 239.000 239.700
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
  mar.17 apr.17 maí.17 jún.17 júl.17 ágú.17
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,3 83,2 82,9 82,8 82,7 82,7
Hlutfall starfandi 81,1 80,9 80,7 80,5 80,5 80,4
Atvinnuleysi 2,7 2,7 2,7 2,8 2,8 2,8
Vinnustundir 40,1 40,1 40,0 39,9 39,8 39,7
Vinnuafl 200.300 199.900 198.900 198.300 198.000 197.900
Starfandi 194.800 194.500 193.500 192.800 192.600 192.500
Atvinnulausir 5.500 5.400 5.400 5.500 5.500 5.500
Utan vinnumarkaðar 40.100 40.400 40.900 41.200 41.300 41.300
Áætlaður mannfjöldi 240.300 240.300 239.900 239.500 239.300 239.200

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.