FRÉTT VINNUMARKAÐUR 21. SEPTEMBER 2016

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 205.200 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í ágúst 2016, sem jafngildir 85,9% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 199.200 starfandi og 6.000 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 83,3% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,9%. Samanburður mælinga fyrir ágúst 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan jókst um 1,6 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 11.700 og hlutfallið af mannfjölda hækkaði um 2,2 stig. Atvinnulausum fækkaði um 1.200 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 0,8 prósentustig.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára ágúst 2016

Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 3,1% í ágúst
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 200.400 í ágúst 2016 sem jafngildir 84,5% atvinnuþátttöku, sem er 1,3 prósentustigum hærri en hún var í júlí. Fjöldi atvinnulausra í júlí var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 6.200 sem er aukning um 500 manns frá því í júlí. Hlutfall atvinnulausra jókst því úr 2,9% í júlí í 3,1% í ágúst. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í ágúst 2016 var 81,9%, sem er 1,1 prósentustigi hærra en í júlí. Leitni vinnuaflstalna sýnir að atvinnuleysi hefur lækkað um 0,2 prósentustig sé horft til síðustu sex mánaða og um eitt stig á síðustu tólf mánuðum. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aftur á móti aukist um 0,4 prósentustig og um 1,8 stig síðustu tólf mánuði.

 

Framkvæmd
Ágúst 2016 nær til fjögurra vikna, eða frá 1. til 28. ágúst. Úrtakið var 1.216 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.177 einstaklingur. Alls fengust nothæf svör frá 853 einstaklingum sem jafngildir 72,5% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,3 stig, hlutfall starfandi ±2,5 stig og og atvinnuleysi ±1,3 stig. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í ágúst - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2014 (±95%)  2015 (±95%)  2016 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,0 2,4 84,2 2,3 85,9 2,3
Hlutfall starfandi 79,1 2,6 81,1 2,5 83,3 2,5
Atvinnuleysi 4,7 1,5 3,7 1,3 2,9 1,3
Vinnustundir 41,3 1,3 40,8 1,3 40,2 1,3
Vinnuafl 192.100 5.500 194.700 5.300 205.200 5.500
Starfandi 183.000 5.900 187.500 5.800 199.200 5.900
Atvinnulausir 9.000 2.800 7.200 2.700 6.000 2.600
Utan vinnumarkaðar 39.400 5.500 36.500 5.300 33.800 5.500
Áætlaður mannfjöldi 231.400 231.200 239.000
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
  mar.16 apr.16 maí.16 jún.16 júl.16 ágú.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 83,2 84,1 83,5 82,8 83,2 84,5
Hlutfall starfandi 80,5 81,1 81,7 80,8 80,8 81,9
Atvinnuleysi 3,3 3,6 2,1 2,5 2,9 3,1
Vinnustundir 40,3 40,3 40,2 39,8 39,6 39,5
Vinnuafl 193.800 197.100 195.500 193.400 198.000 200.400
Starfandi 187.500 190.000 191.400 188.600 192.200 194.200
Atvinnulausir 6.300 7.100 4.100 4.800 5.700 6.200
Utan vinnumarkaðar 39.200 37.300 38.600 40.100 39.900 36.700
Áætlaður mannfjöldi 233.000 234.400 234.200 233.600 237.900 237.000
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
  mar.16 apr.16 maí.16 jún.16 júl.16 ágú.16
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,9 83,1 83,3 83,5 83,7 83,8
Hlutfall starfandi 80,4 80,6 80,9 81,1 81,3 81,4
Atvinnuleysi 3,1 3,0 2,9 2,8 2,9 2,9
Vinnustundir 40,2 40,1 40,0 39,9 39,8 39,7
Vinnuafl 194.700 195.200 195.800 196.500 197.300 198.100
Starfandi 188.800 189.400 190.100 190.900 191.700 192.400
Atvinnulausir 6.000 5.800 5.700 5.600 5.600 5.700
Utan vinnumarkaðar 40.100 39.700 39.300 38.900 38.500 38.200
Áætlaður mannfjöldi 234.800 234.900 235.000 235.300 235.800 236.300

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.