FRÉTT VINNUMARKAÐUR 29. JANÚAR 2015


Atvinnuþátttaka 80,9%
Á fjórða ársfjórðungi 2014 voru að jafnaði 185.700 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði sem jafngildir 80,9% atvinnuþátttöku. Frá fjórða ársfjórðungi 2013 hefur fólki á vinnumarkaði fjölgað um 1.100 en atvinnuþátttakan var nánast sú sama og á sama ársfjórðungi 2013.

Atvinnuþátttaka kvenna var 78,1% en karla 83,7%. Borið saman við sama ársfjórðung 2013 þá var hlutfall kvenna á vinnumarkaði 78,2% og hlutfall karla var 83,1%.

Á vinnumarkaði eða til vinnuaflsins teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Atvinnuþátttaka er hlutfall starfandi og atvinnulausra (vinnuafl) af mannfjölda 16-74 ára.


 

Hlutfall starfandi 77,5%
Á fjórða ársfjórðungi 2014 voru 178.000 manns starfandi eða 77,5% af mannfjölda. Frá fjórða ársfjórðungi 2013 til þess fjórða 2014 fjölgaði starfandi fólki þegar á heildina er litið um 1.800 manns.

Hlutfall starfandi kvenna var 75% og starfandi karla 80,1%. Starfandi konum fjölgaði um 500 og körlum um 1.300 frá fjórða ársfjórðungi 2013. Hlutfall starfandi kvenna var þá 74,7% og starfandi karla 79,3%.


 

Atvinnuleysi 4,1%
Á fjórða ársfjórðungi 2014 voru að meðaltali 7.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 4,1% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 3,9% hjá konum og 4,3% hjá körlum. Samanburður fjórða ársfjórðungs 2014 við sama ársfjórðung 2013 sýnir að atvinnulausum fækkaði um 700 og hlutfallið lækkaði um 0,4 prósentustig.


 

Veruleg fækkun langtímaatvinnulausra
Af þeim sem voru atvinnulausir á fjórða ársfjórðungi 2014 voru að jafnaði 4.100 manns búnir að vera atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur eða 2,2% vinnuaflsins. Sami fjöldi og hlutfall hafði verið atvinnulaus í 2 mánuði eða skemur á fjórða ársfjórðungi 2013.

Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Þegar litið er til undangengis árs þá hefur dregið úr langtímaatvinnuleysi hvað fjölda varðar. Á fjórða ársfjórðungi 2014 höfðu um 1.000 manns verið langtímaatvinnulausir eða 0,5% vinnuaflsins samanborið við 2.000 manns eða 1,1% vinnuaflsins á sama ársfjórðungi 2013.


 

Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegi eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Hagtíðindi
Þessar niðurstöður eru meðal efnis í nýju hefti Hagtíðinda um vinnumarkað á fjórða ársfjórðungi 2014.

Atvinnuþátttaka, atvinnuleysi og fjöldi starfandi á 4. ársfjórðungi
  2011 2012 2013 2014
  4. ársfj. 4. ársfj. 4. ársfj. 4. ársfj. Öryggisbil ±
Atvinnuþátttaka, % 78,5 78,7 80,7 80,9 1,2
Hlutfall starfandi 73,8 75,0 77,0 77,5 1,3
Atvinnuleysi, % 6,0 4,7 4,5 4,1 0,8
Vinnuafl, áætl. fjöldi 176.000 176.800 184.600 185.700 2.800
Starfandi, áætl. fjöldi 165.400 168.400 176.200 178.000 3.100
Atvinnulausir, áætl. fjöldi 10.600 8.400 8.400 7.700 1.500
Starfandi í fullu starfi, áætl. fjöldi 123.700 126.800 129.300 132.000 2.800
Starfandi í hlutastarfi, áætl. fjöldi 41.600 41.600 46.900 46.000 2.800
Heildarvinnutími, klst. 39,2 38,7 38,9 39,3 0,7
Vinnutími í fullu starfi, klst. 44,6 44,2 44,9 45,0 0,7
Vinnutími í hlutastarfi, klst. 22,7 21,7 21,8 22,1 1,0
Utan vinnumarkaðar, áætl. fjöldi 48.100 47.800 44.200 43.800 2.800
Mannfjöldi, áætl. fjöldi 224.100 224.600 228.800 229.600
Hlutföll eru reiknuð af fjöldatölum áður en þær eru námundaðar á næsta hundrað.

Framkvæmd
Fjórði ársfjórðungur 2014 nær til 13 vikna, frá 29. september til 28. desember 2014. Heildarúrtakið var 3.942 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem reyndust látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 3.837 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.061 einstaklingi sem jafngildir 79,8% svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±1,2 prósentustig, hlutfall starfandi ±1,3 stig, atvinnuleysi ±0,8 stig og vinnutíma ±0,7 klukkustundir.

Vinnumarkaður á 4. ársfjórðungi 2014 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.