FRÉTT VINNUMARKAÐUR 02. NÓVEMBER 2017

Á þriðja ársfjórðungi 2017 voru að jafnaði 198.600 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 194.300 starfandi og 4.300 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka var 82%, hlutfall starfandi 80,2% og atvinnuleysi 2,2%. Fjöldi starfandi stóð í stað frá þriðja ársfjórðungi 2016 og hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði um 2,1 prósentustig. Á sama tíma fækkaði atvinnulausum um 900 manns og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli lækkaði um 0,5 prósentustig. Atvinnulausar konur voru 2.300 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,5%. Atvinnulausir karlar voru 2.000 eða 1,9%. Atvinnuleysi var 2,5% á höfuðborgarsvæðinu og 1,5% utan þess.

 

Langtímaatvinnuleysi nánast horfið
Langtímaatvinnuleysi jókst árin 2009 til 2012 en er nú svipað og það var fyrir þann tíma. Á þriðja ársfjórðungi 2017 voru um 400 manns langtímaatvinnulausir eða 10,3% atvinnulausra samanborið við 600 manns á þriðja ársfjórðungi 2016, sem þá var 11,9% atvinnulausra. Á þriðja ársfjórðungi 2017 voru 0,2% af þeim sem voru á vinnumarkaði langtímaatvinnulausir samanborðið við 0,3% á þriðja ársfjórðungi 2016.

Vinnutími
Á þriðja ársfjórðungi 2017 voru að jafnaði 161.200 manns við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins eða 83% starfandi fólks og 66,6% af heildarmannfjölda 16-74 ára. Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku voru 40,5 klukkustundir hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 44,3 klukkustundir hjá þeim sem voru í fullu starfi og 25,9 klukkustundir hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Vinnumarkaður á 3. ársfjórðungi 2017 - Hagtíðindi

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.