FRÉTT VINNUMARKAÐUR 17. ÁGÚST 2016

Atvinnuleysi var 3,6% á öðrum ársfjórðungi 2016
Á öðrum ársfjórðungi 2016 voru 199.300 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 192.100 starfandi og 7.200 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 85%, hlutfall starfandi mældist 81,9% og atvinnuleysi var 3,6%. Frá öðrum ársfjórðungi 2015 fjölgaði starfandi fólki um 5.600 og hlutfallið jókst um 1,8 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 2.600 manns og hlutfallið lækkaði um 1,4 prósentustig. Atvinnulausar konur voru 3.800 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 4,1%. Atvinnulausir karlar voru 3.400 eða 3,2%. Atvinnuleysi var 4,3% á höfuðborgarsvæðinu en 2,4% utan þess.


Langtímaatvinnuleysi
Á öðrum ársfjórðungi 2016 höfðu 800 manns verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur samanborið við 900 manns á öðrum ársfjórðungi 2015. Langtímaatvinnuleysi, sem hlutfall af heildarfjölda atvinnulausra var 11% samanborið við 9% á sama tíma fyrir ári. Ef hlutfallið er tekið af öllum á vinnumarkaði þá voru 0,4% langtímaatvinnulausir samanborið við 0,5% árið áður.

 

Vinnutími
Á öðrum ársfjórðungi 2016 voru 174.300 manns við vinnu í viðmiðunarvikunni, sem er 74,3% af mannfjölda og 90,7% af öllu starfandi fólki. Á öðrum ársfjórðungi 2016 var meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku 40,9 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni. Meðalfjöldi vinnustunda á viku hjá þeim sem voru í fullu starfi var 45,2 klst. og 25,2 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Vinnumarkaður á 2. ársfjórðungi 2016 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.