FRÉTT VINNUMARKAÐUR 15. JÚLÍ 2009


Atvinnuleysi 9,1%
Á öðrum ársfjórðungi 2009 voru að meðaltali 16.600 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 9,1% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 10,6% hjá körlum og 7,2% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 21,9%. Frá öðrum ársfjórðungi 2008 til annars ársfjórðungs 2009 fjölgaði atvinnulausum um 10.900 manns.

Á öðrum ársfjórðungi 2008 voru að meðaltali 5.700 atvinnulausir og mældist atvinnuleysi 3,1%. Atvinnuleysi mældist þá 3,2% hjá körlum og 2,9% hjá konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 10,8%.

Þeim sem hafa leitað að vinnu í einn mánuð eða meira hefur fjölgað frá öðrum ársfjórðungi 2008 úr 1.900 í 11.800 á öðrum ársfjórðungi 2009, eða um 9.800. Á öðrum ársfjórðungi 2009 höfðu 45,8% atvinnulausra leitað að starfi í þrjá mánuði eða lengur en 10,7% á öðrum ársfjórðungi 2008.

Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða.

Starfandi fólki fækkar um 15.200 og atvinnuþátttakan var 81,9%
Fjöldi starfandi á öðrum ársfjórðungi 2009 var 166.300 manns og fækkaði um 15.200 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 182.900 manns sem jafngildir 81,9% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 86,4% og kvenna 77,2%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á öðrum ársfjórðungi 2008 voru alls 187.200 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 84%. Atvinnuþátttaka karla var 89,2% og kvenna 78,4%.

Vinnutími 39,9 klst. á viku
Á öðrum ársfjórðungi 2009 var meðalfjöldi vinnustunda 39,9 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 43,9 klst. hjá körlum en 35,4 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 44,5 klst. en 23,9 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Á öðrum ársfjórðungi 2008 var meðalfjöldi vinnustunda 42,7 klst., 47,4 klst. hjá körlum en 36,6 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 47 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 24 klst.

Hagtíðindi
Þessar niðurstöður eru meðal efnis í nýju hefti Hagtíðinda um vinnumarkað á öðrum ársfjórðungi 2009.

Atvinnuþátttaka, atvinnuleysi og fjöldi starfandi á 2. ársfjórðungi
  2006 2007 2008

2009

  2. ársfj. 2. ársfj. 2. ársfj. 2. ársfj. Vikmörk ±
Atvinnuþátttaka, % 85,1 85,0 84,0 81,9 1,2
Hlutfall starfandi 81,7 82,4 81,4 74,5 1,4
Atvinnuleysi, % 4,0 3,2 3,1 9,1 1,1
Vinnuafl, áætl. fjöldi 178.700 184.800 187.200 182.900 2.700
Starfandi, áætl. fjöldi 171.600 179.000 181.500 166.300 3.200
Atvinnulausir, áætl. fjöldi 7.200 5.800 5.700 16.600 2.000
Starfandi í fullu starfi, áætl. fjöldi 135.700 141.500 146.000 128.900 2.600
Starfandi í hlutastarfi, áætl. fjöldi 35.800 37.500 35.500 37.500 2.600
Heildarvinnutími, klst. 42,2 42,1 42,7 39,9 0,7
Vinnutími í fullu starfi, klst. 46,2 46,6 47,0 44,5 0,7
Vinnutími í hlutastarfi, klst. 25,7 24,5 24,0 23,9 1,1
Utan vinnumarkaðar, áætl. fjöldi 31.400 32.500 35.600 40.300 2.700
Mannfjöldi, áætl. fjöldi 210.100 217.300 222.800 223.300
Hlutföll eru reiknuð af fjöldatölum áður en þær eru námundaðar á næsta hundrað.

Framkvæmd
Annar ársfjórðungur 2009 nær til 13 vikna, frá 30. mars 2009 til 28. júní 2009. Heildarúrtakið var 3.875 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 3.805 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.082 einstaklingi sem jafngildir 81,0% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ± 1,2%, atvinnuleysi ± 1,1% og vinnutíma ± 0,7 klukkustundir.

Vinnumarkaður á 2. ársfjórðungi 2009 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.