FRÉTT VINNUMARKAÐUR 29. APRÍL 2015


Atvinnuþátttaka 81%
Á fyrsta ársfjórðungi 2015 voru að jafnaði 187.300 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði sem jafngildir 81% atvinnuþátttöku. Frá fyrsta ársfjórðungi 2014 hefur fólki á vinnumarkaði fjölgað um 5.400 og atvinnuþátttakan aukist um 1,6 prósentustig eða úr 79,4%.

Atvinnuþátttaka kvenna var 77,9% en karla 84%. Borið saman við sama ársfjórðung 2014 þá var hlutfall kvenna á vinnumarkaði 75,9% og hlutfall karla var 82,9%.

Á vinnumarkaði eða til vinnuaflsins teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Atvinnuþátttaka er hlutfall starfandi og atvinnulausra (vinnuafl) af mannfjölda 16-74 ára.


 

Hlutfall starfandi 77,5%
Á fyrsta ársfjórðungi 2015 voru 179.200 manns starfandi eða 77,5% af mannfjölda. Frá fyrsta ársfjórðungi 2014 til þess fyrsta 2015 fjölgaði starfandi fólki þegar á heildina er litið um 7.800 manns og hlutfallið hækkaði um 2,7 prósentustig.

Hlutfall starfandi kvenna var 74,4% og starfandi karla 80,5%. Starfandi konum fjölgaði um 3.100 og körlum um 4.600 frá fyrsta ársfjórðungi 2014. Hlutfall starfandi kvenna var þá 72,1% og starfandi karla var 77,5%.



 


Atvinnuleysi 4,3%
Á fyrsta ársfjórðungi 2015 voru að meðaltali 8.000 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 4,3% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 4,4% hjá konum og 4,2% hjá körlum. Samanburður fyrsta ársfjórðungs 2015 við sama ársfjórðung 2014 sýnir að atvinnulausum fækkaði um 2.500 manns og hlutfallið lækkaði um 1,5 prósentustig.


 

Langtímaatvinnuleysi
Af þeim sem voru atvinnulausir á fyrsta ársfjórðungi 2015 voru að jafnaði 4.300 manns búnir að vera atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur eða 53,7% atvinnulausra, sem er 2,3% af vinnuaflinu. Á fyrsta ársfjórðungi 2014 höfðu 5.300 verið atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur, sem þá var 50,5% atvinnulausra eða 2,9% vinnuaflsins.

Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Á fyrsta ársfjórðungi 2015 höfðu um 1.500 manns verið langtímaatvinnulausir eða 18,4% atvinnulausra samanborið við 1.700 manns eða 15,8% atvinnulausra á fyrsta ársfjórðungi 2014.

 


 

Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegi eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Hagtíðindi
Þessar niðurstöður eru meðal efnis í nýju hefti Hagtíðinda um vinnumarkað á fyrsta ársfjórðungi 2015.

Atvinnuþátttaka, atvinnuleysi og fjöldi starfandi á 1. ársfjórðungi
  2012 2013 2014 2015
  1. ársfj. 1. ársfj. 1. ársfj. 1. ársfj. Öryggisbil ±
Atvinnuþátttaka, % 79,0 78,9 79,4 81,0 1,2
Hlutfall starfandi 73,3 74,3 74,8 77,5 1,3
Atvinnuleysi, % 7,2 5,8 5,8 4,3 0,8
Vinnuafl, áætl. fjöldi 175.800 178.300 181.900 187.300 2.800
Atvinnulausir, áætl. fjöldi 12.600 10.300 10.500 8.000 1.500
Starfandi, áætl. fjöldi 163.200 167.900 171.400 179.200 3.100
Launþegar, áætl. fjöldi 142.300 146.200 150.700 157.600 2.300
Sjálfstætt starfandi, áætl. fjöldi 21.000 21.800 20.700 21.600 2.300
Starfandi í fullu starfi, áætl. fjöldi 119.600 123.900 127.300 132.700 2.800
Starfandi í hlutastarfi, áætl. fjöldi 43.700 44.100 44.100 46.500 2.800
Heildarvinnutími, klst. 39,9 38,2 38,9 39,0 0,7
Vinnutími í fullu starfi, klst. 46,2 44,0 44,5 44,7 0,7
Vinnutími í hlutastarfi, klst. 22,1 21,3 22,0 22,2 1,0
Utan vinnumarkaðar, áætl. fjöldi 46.900 47.700 47.200 44.000 2.800
Mannfjöldi, áætl. fjöldi 222.700 226.000 229.100 231.300
Hlutföll eru reiknuð af fjöldatölum áður en þær eru námundaðar á næsta hundrað.

Framkvæmd
Fyrsti ársfjórðungur 2015 nær til 13 vikna, frá 29. desember 2014 til 29. mars 2015. Heildarúrtakið var 3.946 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem reyndust látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 3.853 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.060 einstaklingum sem jafngildir 79,4% svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±1,2 prósentustig, hlutfall starfandi ±1,3 stig, atvinnuleysi ±0,8 stig og vinnutíma ±0,7 klukkustundir.

Vinnumarkaður á 1. ársfjórðungi 2015 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.