Alls voru um 222.000 einstaklingar starfandi á íslenskum vinnumarkaði í október 2025 samkvæmt skrám. Starfandi einstaklingum fækkaði um 700 á milli ára sem samsvarar 0,3% fækkun. Fjöldi starfandi kvenna í október var um 103.400 og fjöldi starfandi karla um 118.600.
Athygli er vakin á því að um er að ræða bráðabirgðatölur þar sem mánaðarlegar uppfærslur á staðgreiðsluskrá ná jafnan nokkra mánuði aftur í tímann. Jafnframt eru aðferðir við framleiðslu hagtalna úr staðgreiðslugögnum í stöðugri endurskoðun og gæti bætt verklag haft minniháttar áhrif á niðurstöður.