TALNAEFNI VINNUMARKAÐUR 05. FEBRÚAR 2026

Alls voru um 220.900 einstaklingar starfandi á íslenskum vinnumarkaði í desember 2025 samkvæmt skrám. Starfandi einstaklingum fækkaði um 300 á milli ára sem samsvarar 0,15% fækkun. Fjöldi starfandi kvenna í desember var um 103.100 og fjöldi starfandi karla um 117.800.

Athygli er vakin á því að um er að ræða bráðabirgðatölur þar sem mánaðarlegar uppfærslur á staðgreiðsluskrá ná jafnan nokkra mánuði aftur í tímann. Jafnframt eru aðferðir við framleiðslu hagtalna úr staðgreiðslugögnum í stöðugri endurskoðun og gæti bætt verklag haft minniháttar áhrif á niðurstöður.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.