Alls voru um 217.700 einstaklingar starfandi á íslenskum vinnumarkaði í apríl 2025 samkvæmt skrám. Starfandi einstaklingum fjölgaði um 500 á milli ára sem samsvarar 0,2% fjölgun. Fjöldi starfandi kvenna í apríl var um 101.700 og fjöldi starfandi karla um 115.900.