Alls voru um 233.900 einstaklingar starfandi á íslenskum vinnumarkaði í ágúst 2025 samkvæmt skrám. Starfandi einstaklingum fjölgaði um 1.200 á milli ára sem samsvarar 0,5% fjölgun. Fjöldi starfandi kvenna í ágúst var um 108.800 og fjöldi starfandi karla um 124.900.