Alls voru 4.880 störf laus á íslenskum vinnumarkaði á öðrum ársfjórðungi 2025 samkvæmt starfaskráningu Hagstofu Íslands. Á sama tíma voru um 246.280 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því 1.9% (sjá öryggisbil í töflu).
Lausum störfum fækkaði um 220 á milli ársfjórðunga og hlutfall lausra starfa lækkaði um 0,3 prósentustig. Samanburður við annan ársfjórðung 2024 sýnir að lausum störfum fækkaði um 3.530 á milli ára og hlutfall lausra starfa dróst saman um 1,4 prósentustig.
Um gögnin
Starfaskráning Hagstofu Íslands er ársfjórðungsleg úrtaksrannsókn sem nær til allra lögaðila á Íslandi sem eru með fleiri en einn starfsmann í vinnu á viðmiðunardegi rannsóknarinnar. Úrtakið er valið í byrjun árs á grundvelli upplýsinga úr fyrirtækjaskrá Hagstofu Íslands frá árinu á undan.
Viðmiðunardagur starfaskráningar fyrir annan ársfjórðung 2025 var 15. maí. Alls fengust 623 svör og var svarhlutfall 89,4%. Niðurstöður eru bráðabirgðartölur og verða endurskoðaðar.
Upplýsingar um fjölda mannaðra starfa byggja á staðgreiðslugögnum sem eru bráðabirgðatölur þangað til tólf mánuðir hafa liðið frá viðmiðunartímabili. Eftir þann tíma eru þær festar og metnar áreiðanlegar. Fyrirhugað er að endurskoða tölurnar á þriggja ára fresti ef markverðar breytingar hafa orðið á eldri tölum.
Við túlkun á fjölda og hlutfalli lausra starfa þarf að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða. Því þarf að hafa 95% öryggisbil til hliðsjónar við túlkun á niðurstöðum.