FRÉTT VINNUMARKAÐUR 10. ÁGÚST 2023

Alls voru 6.230 laus störf á íslenskum vinnumarkaði á öðrum ársfjórðungi 2023 samkvæmt starfaskráningu Hagstofu Íslands. Á sama tíma voru um 240.300 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því 2,5%, sjá öryggisbil í töflu. Lausum störfum fækkaði um 1.910 frá fyrsta ársfjórðungi 2023 og lækkaði hlutfall lausra starfa um 1,0 prósentustig. Samanburður við annan ársfjórðung 2022 sýnir að lausum störfum fækkaði um rúmlega 6.800 á milli ára og hlutfall lausra starfa dróst saman um 2,9 prósentustig.


Um gögnin
Starfaskráning Hagstofu Íslands er ársfjórðungsleg úrtaksrannsókn sem nær til allra lögaðila á Íslandi sem eru með fleiri en einn starfsmann í vinnu á viðmiðunardegi rannsóknarinnar. Valið er í úrtak einu sinni á ári í byrjun hvers árs á grundvelli fyrirtækjaskrár Hagstofu Íslands ársins á undan. Viðmiðunardagur starfaskráningar fyrir annan ársfjórðung 2023 var 15. maí 2023. Alls fengust 562 svör og var svarhlutfall 90,2%.

Samhliða uppfærslu á talnaefni fyrir annan ársfjórðung 2023 var öll tímaröð með fjöldatölum um störf í atvinnugrein C. uppfærð. Villa í úrvinnslu olli því að of fáir voru sagðir starfa í atvinnugreininni (mismunurinnn var á bilinu 4.700-5.200 störf). Villan hafði áhrif á hlutfall lausra starfa í greininni og lækkaði hlutfallið á bilinu 0,2 til 1,1 prósentustig við uppfærsluna.

Upplýsingar um fjölda mannaðra starfa byggja á staðgreiðslugögnum sem eru bráðabirgðatölur þangað til tólf mánuðir hafa liðið frá viðmiðunartímabili. Eftir þann tíma eru þær festar og metnar áreiðanleg lýsing á þýðistölum. Fyrirhugað er að endurskoða tölurnar á þriggja ára fresti ef markverðar breytingar hafa orðið á eldri tölum.

Við túlkun á fjölda og hlutfalli lausra starfa þarf að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða. Því þarf að hafa 95% öryggisbil til hliðsjónar við túlkun á niðurstöðum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1037 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.