FRÉTT VINNUMARKAÐUR 14. JANÚAR 2009


Atvinnuleysi 4%
Á fjórða ársfjórðungi 2008 voru að meðaltali 7.400 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 4% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 5,1% hjá körlum og 2,9% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 10,8%. Frá fjórða ársfjórðungi 2007 til fjórða ársfjórðungs 2008 fjölgaði atvinnulausum um 3.900 manns.

Á fjórða ársfjórðungi 2007 voru að meðaltali 3.500 atvinnulausir og mældist atvinnuleysi 1,9%. Atvinnuleysi mældist þá 2,1% hjá körlum og 1,8% hjá konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 6,2%.

Þeim sem hafa leitað að vinnu í meira en einn mánuð hefur fjölgað frá fjórða ársfjórðungi 2007 úr 1.200 í 4.400 á fjórða ársfjórðungi 2008, eða um 3.200 manns. Á fjórða ársfjórðungi 2008 höfðu 60% atvinnulausra leitað lengur en einn mánuð en 34,4% á fjórða ársfjórðungi 2007.

Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar, sem eru ekki í vinnu en eru í námi, flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.

Starfandi fólki fækkar um 1.300 og atvinnuþátttakan var 81,5%
Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2008 var 175.000 manns og fækkaði um 1.300 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 182.400 manns sem jafngildir 81,5% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 85,3% og kvenna 77,4%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á fjórða ársfjórðungi 2007 voru alls 179.800 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 81,7%. Atvinnuþátttaka karla var 86,7% og kvenna 76,4%.

Vinnutími 39,3 klst. á viku
Á fjórða ársfjórðungi 2008 var meðalfjöldi vinnustunda 39,3 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 43,8 klst. hjá körlum en 34,2 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 45 klst. en 21,7 klst.hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Á fjórða ársfjórðungi 2007 var meðalfjöldi vinnustunda 40,8 klst., 45,5 klst. hjá körlum en 35 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 46,2 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 22,8 klst.

Hagtíðindi
Þessar niðurstöður eru meðal efnis í nýju hefti Hagtíðinda um vinnumarkað á fjórða ársfjórðungi 2008.

Atvinnuþátttaka, atvinnuleysi og fjöldi starfandi á 4. ársfjórðungi
    2005 2006 2007 2008
    4. ársfj. 4. ársfj. 4. ársfj. 4. ársfj. Vikmörk ±
Atvinnuþátttaka Hlutfallstölur 81,3 82,1 81,7 81,5 1,2
Hlutfall starfandi Hlutfallstölur 79,1 80,0 80,1 78,2 1,3
Atvinnuleysi Hlutfallstölur 2,7 2,5 1,9 4,0 0,8
Vinnuafl Áætlaður fjöldi 165.900 174.300 179.800 182.400 2.200
Starfandi Áætlaður fjöldi 161.500 169.900 176.300 175.000 2.300
Atvinnulausir Áætlaður fjöldi 4.400 4.300 3.500 7.400 100
Starfandi í fullu starfi Áætlaður fjöldi 119.000 129.400 135.100 130.900 2.000
Starfandi í hlutastarfi Áætlaður fjöldi 42.400 40.600 41.200 44.100 700
Heildarvinnutími Klukkustundir 41,6 42,3 40,8 39,3 0,6
Vinnutími í fullu starfi Klukkustundir 47,6 47,8 46,2 45,0 0,6
Vinnutími í hlutastarfi Klukkustundir 23,9 23,7 22,8 21,7 0,9
Utan vinnumarkaðar Áætlaður fjöldi 38.100 38.100 40.200 41.400 500
Mannfjöldi Áætlaður fjöldi 204.000 212.300 220.000 223.800  
Hlutföll eru reiknuð af fjöldatölum áður en þær eru námundaðar á næsta hundrað.

Framkvæmd
Fjórði ársfjórðungur 2008 nær til 13 vikna, frá 29. september til 28. desember. Heildarúrtakið var 3.894 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið vera 3.795 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.104 einstaklingum sem jafngildir 81,8% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ± 1,2%, atvinnuleysi ± 0,8% og vinnutíma ± 0,6 klukkustund.

Vinnumarkaður á 4. ársfjórðungi 2008 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.