FRÉTT VINNUMARKAÐUR 19. OKTÓBER 2005


Atvinnuleysi minnkar
Á þriðja ársfjórðungi 2005 voru að meðaltali 2.900 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 1,8% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 1,2% hjá körlum en 2,4% hjá konum. Atvinnuleysið var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 3,5%. 

Á þriðja ársfjórðungi 2004 mældist atvinnuleysi 2,6%. Atvinnuleysi karla var þá 2,0% en 3,4% hjá konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 4,9%.


Starfandi fólki fjölgar og atvinnuþátttaka eykst
Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2005 var 164.000 manns og fjölgaði um 6.000 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 167.000 manns sem jafngildir 83,1% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 88,3% en kvenna 77,7%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir.

Á þriðja ársfjórðungi 2004 mældist atvinnuþátttaka 81,5%, 85,9% hjá körlum og 77,1% hjá konum. Fólki á vinnumarkaði fjölgaði um 4.700 manns frá þriðja fjórðungi fyrra árs til jafnlengdar á þessu ári, mest í aldurshópnum 55-74 ára.


Vinnutími 43,8 klst. á viku
Á þriðja ársfjórðungi 2005 var meðalfjöldi vinnustunda 43,8 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 48,6 klst. hjá körlum en 37,4 klst. hjá konum.

Á þriðja ársfjórðungi 2004 var fjöldi vinnustunda 43,7 klst., 48,7 klst. hjá körlum en 37,5 klst. hjá konum.


Framkvæmd
Frá og með ársbyrjun 2003 hefur Hagstofan stundað samfellda vinnumarkaðsrannsókn sem gefur niðurstöður fyrir hvern ársfjórðung. Þriðji ársfjórðungur 2005 nær til 13 vikna, frá 27. júní til 25. september. Heildarúrtakið var 3.945 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið vera 3.804 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.107 einstaklingum sem jafngildir 81,7% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Skekkjumörk á niðurstöðum um atvinnuleysi eru ± 0,8%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.