FRÉTT VINNUMARKAÐUR 16. JÚLÍ 2008


Atvinnuleysi 3,1%
Á öðrum ársfjórðungi 2008 voru að meðaltali 5.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 3,1% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 3,2% hjá körlum og 2,9% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 10,8%.

Á öðrum ársfjórðungi 2007 mældist atvinnuleysi 3,2%. Atvinnuleysi mældist 3,4% hjá körlum og 2,8% hjá konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 10,2%.

Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar, sem eru ekki í vinnu en eru í námi, flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.


36,9% atvinnulausra höfðu leitað að vinnu í innan við einn mánuð og 29,6% höfðu fengið vinnu sem hefst síðar
Af þeim sem voru atvinnulausir á öðrum ársfjórðungi 2008 voru 1.700 búnir að finna vinnu sem hefst síðar, eða 29,6%, 2.100 manns eða 36,9% voru búnir að leita skemur en einn mánuð að vinnu. Af þeim sem voru atvinnulausir höfðu 300 manns, eða 5,8% leitað að vinnu í 6 mánuði eða lengur.

Tafla 1.  Atvinnulausir á 2. ársfjórðungi eftir lengd atvinnuleitar        
2005 2006 2007 2008
  Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi %
Atvinnulausir 5.000 100,0 7.200 100,0 5.800 100,0 5.700 100,0
Búinn að fá vinnu sem hefst síðar 1.500 28,9 2.000 28,5 1.900 33,1 1.700 29,6
Innan við einn mánuður 1.400 28,5 2.800 38,6 1.900 32,3 2.100 36,9
1-2 mánuðir 900* 17,0* 1.200 16,7 900* 15,4* 1.300 22,8
3-5 mánuðir 500* 9,1* 400* 5,9* 500* 9,3* 300* 4,9*
6 mánuðir eða lengur 800* 16,5* 700* 10,3* 600* 9,9* 300* 5,8*
Hlutföll eru reiknuð af fjöldatölum áður en þær eru námundaðar á næsta hundrað.
* frávikshlutfall yfir 20%

Starfandi fólk 181.500 og atvinnuþátttakan var 84,0%
Fjöldi starfandi á öðrum ársfjórðungi 2008 var 181.500 manns og fjölgaði um 2.400 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 187.200 manns sem jafngildir 84,0% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 89,2% og kvenna 78,4%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á öðrum ársfjórðungi 2007 voru alls 185.000 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 85,1%. Atvinnuþátttaka karla var 89,1% og kvenna 80,7%.


Vinnutími 42,7 klst. á viku
Á öðrum ársfjórðungi 2008 var meðalfjöldi vinnustunda 42,7 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 47,4 klst. hjá körlum en 36,6 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 47,0 klst., 49,8 klst. hjá körlum en 42,4 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í hlutastarfi voru 24 klst., 22,1 klst. hjá körlum en 24,7 klst. hjá konum.

Á öðrum ársfjórðungi 2007 var fjöldi vinnustunda 42,2 klst., 47,4 klst. hjá körlum en 35,7 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 46,6 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 24,5 klst.


Tafla 2.  Atvinnuþátttaka, atvinnuleysi og fjöldi starfandi á 2. ársfjórðungi
      2005 2006 2007 2008
Atvinnuþátttaka Hlutfallstölur 83,5 85,1 85,1 84,0
Hlutfall starfandi Hlutfallstölur 81,0 81,7 82,4 81,4
Atvinnuleysi Hlutfallstölur 3,0 4,0 3,2 3,1
Vinnuafl Áætlaður fjöldi 168.900 178.700 185.000 187.200
Starfandi Áætlaður fjöldi 163.800 171.600 179.100 181.500
Atvinnulausir Áætlaður fjöldi 5.000 7.200 5.800 5.700
Starfandi í fullu starfi Áætlaður fjöldi 131.500 135.700 141.700 146.000
Starfandi í hlutastarfi Áætlaður fjöldi 32.300 35.800 37.500 35.500
Heildarvinnutími Klukkustundir 43,1 42,2 42,2 42,7
Vinnutími í fullu starfi Klukkustundir 47,3 46,1 46,6 47,0
Vinnutími í hlutastarfi Klukkustundir 25,0 25,7 24,5 24,0
Utan vinnumarkaðar Áætlaður fjöldi 33.400 31.400 32.500 35.600
Mannfjöldi Áætlaður fjöldi 202.200 210.100 217.500 222.800
Hlutföll eru reiknuð af fjöldatölum áður en þær eru námundaðar á næsta hundrað.

Framkvæmd
Frá og með ársbyrjun 2003 hefur Hagstofan framkvæmt samfellda vinnumarkaðsrannsókn sem gefur niðurstöður fyrir hvern ársfjórðung. Annar ársfjórðungur 2008 nær til 13 vikna, frá 31. mars til 29. júní. Heildarúrtakið var 3.921 manns á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið vera 3.834 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 3.054 einstaklingum sem jafngildir 79,7% endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ± 1,2%, atvinnuleysi ± 0,7% og vinnutíma ± 1 klukkustund.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.