FRÉTT VINNUMARKAÐUR 23. JÚLÍ 2015

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 202.200 á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í júní 2015, sem jafngildir 86,6% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 196.400 starfandi og 5.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 84,1% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,9%. Samanburður mælinga fyrir júní 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um 1,3 prósentustig og hlutfall starfandi fólks af mannfjölda jókst um 2,7 stig. Það þarf að horfa aftur til júní 2008 til að finna hærra hlutfall starfandi fólks. Atvinnulausum fækkaði nokkuð milli ára eða um 3.200 manns og hlutfall atvinnuleysis er lægra sem nemur 1,7 prósentustigum.

Flæðirit – Vinnumarkaður 16-74 ára júní 2015


 
Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 3,2% í júní
Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 190.800 í júní 2015 sem jafngildir 83,2% atvinnuþátttöku, sem er 0,2 prósentustigum hærri en hún var í maí. Fjöldi atvinnulausra í júní var samkvæmt árstíðaleiðréttingu 6.100 sem er fækkun um 2.500 manns frá því í maí. Hlutfall atvinnulausra minnkaði úr 4,4% í maí í 3,2% í júní. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í júní 2015 var 80,5%, sem er aukning um 1,3 prósentustig frá því í maí. Leitni vinnuaflstalna sýnir að atvinnuleysi hefur lækkað um 0,2 prósentustig sé horft til síðustu sex mánaða og um 0,8 stig á síðustu tólf mánuðum. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aukist um 0,6 prósentustig og um 1,2 stig síðustu tólf mánuði.

Framkvæmd og aðferð
Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglulega í tilteknum mánuðum og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum, eins og sjá má á myndunum hér að framan. Árstíðaleiðrétting er tölfræðileg aðferð sem leitast við að aðgreina árstíðabundnar sveiflur frá óreglulegum breytingum. Árstíðaleiðréttingin gerir samanburð á milli samliggjandi mánaða mun raunhæfari og segir betur um hvert tölurnar stefna. Vegna eðli árstíðaleiðréttinga hafa nýjar mælingar áhrif á alla tímaröðina. Hagstofa Íslands notar Tramo-Seats aðferð við árstíðaleiðréttingu.

Júní 2015 nær til fjögurra vikna, frá 1. til 29. júní. Úrtakið var 1.212 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.193 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 939 einstaklingum sem jafngildir 78,7% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,0, hlutfall starfandi ±2,2 og atvinnuleysi ±1,2. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í júní - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2013 (±95%)  2014 (±95%)  2015 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 84,3 2,3 85,3 2,2 86,6 2
Hlutfall starfandi 78,9 2,6 81,4 2,4 84,1 2,2
Atvinnuleysi 6,4 1,7 4,6 1,2 2,9 1,2
Vinnustundir 42,5 1,3 43,2 1,3 42,5 1,3
Vinnuafl 191.000 5.200 195.300 5.000 202.200 4.800
Starfandi 178.700 5.800 186.300 5.600 196.400 5.200
Atvinnulausir 12.300 3.300 9.000 2.900 5.800 2.300
Utan vinnumarkaðar 35.600 5.200 33.600 5.000 31.300 4.800
Áætlaður mannfjöldi 226.500 228.800 233.500
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
   
  jan.15 feb.15 mar.15 apr.15 maí.15 jún.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 81,2 82,5 82,8 82,3 83,0 83,2
Hlutfall starfandi 77,7 78,6 79,4 78,4 79,3 80,5
Atvinnuleysi 4,3 4,7 4,1 4,7 4,4 3,2
Vinnustundir 40,2 39,8 39,8 39,8 39,9 40,0
Vinnuafl 189.400 192.100 191.900 192.000 194.200 190.800
Starfandi 181.200 183.100 184.100 183.000 185.600 184.700
Atvinnulausir 8.200 9.000 7.800 9.000 8.600 6.100
Utan vinnumarkaðar 43.700 40.800 39.900 41.400 39.900 38.500
Áætlaður mannfjöldi 233.100 232.900 231.700 233.400 234.100 229.400
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
   
  jan.15 feb.15 mar.15 apr.15 maí.15 jún.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,0 82,0 82,2 82,4 82,5 82,6
Hlutfall starfandi 78,3 78,4 78,6 78,8 79,0 79,2
Atvinnuleysi 4,4 4,4 4,3 4,3 4,2 4,2
Vinnustundir 40,0 40,0 39,9 39,9 39,9 39,9
Vinnuafl 189.700 190.600 191.400 192.000 192.500 193.000
Starfandi 181.300 182.200 183.100 183.800 184.400 184.900
Atvinnulausir 8.400 8.400 8.300 8.200 8.200 8.100
Utan vinnumarkaðar 41.800 41.800 41.500 41.100 40.800 40.500
Áætlaður mannfjöldi 231.500 232.400 232.900 233.100 233.300 233.600


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.