FRÉTT VINNUMARKAÐUR 26. ÁGÚST 2015

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 197.500 á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í júlí 2015, sem jafngildir 84,5% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 191.200 starfandi og 6.300 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 81,8% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,2%. Samanburður mælinga fyrir júlí 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka minnkaði um 0,5 prósentustig. Hlutfall starfandi fólks af mannfjölda minnkaði um 0,3 stig og atvinnuleysi var nánast það sama og það var í júlí 2014.

Flæðirit – Vinnumarkaður 16-74 ára, júlí 2015


Samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðu
vegna þess að tölur eru jafnaðar.


Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 4,3% í júlí

Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 190.600 í júlí 2015 sem jafngildir 81,9% atvinnuþátttöku, sem er 1,3 prósentustigum lægri en hún var í júní. Fjöldi atvinnulausra í júlí var samkvæmt árstíðaleiðréttingu 8.100 sem er aukning um 1.800 manns frá því í júní. Hlutfall atvinnulausra jókst úr 3,3% í maí í 4,3% í júlí. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í júlí 2015 var 78,4%, sem er lækkun um tvö prósentustig frá því í júní. Þrátt fyrir þessa aukningu á milli mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi lækkar enn, eða um 0,2 prósentustig sé horft til síðustu sex mánaða og um 0,7 stig á síðustu tólf mánuðum. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aukist um 0,6 prósentustig og um eitt stig síðustu tólf mánuði.

Framkvæmd og aðferð
Mælingar sýna að íslenskur vinnumarkaður breytist reglulega í tilteknum mánuðum og stafar breytileikinn af ýmsum árstíðabundnum þáttum, eins og sjá má á myndunum hér að framan. Árstíðaleiðrétting er tölfræðileg aðferð sem leitast við að aðgreina árstíðabundnar sveiflur frá óreglulegum breytingum. Árstíðaleiðréttingin gerir samanburð á milli samliggjandi mánaða mun raunhæfari og segir betur um hvert tölurnar stefna. Vegna eðli árstíðaleiðréttinga hafa nýjar mælingar áhrif á alla tímaröðina. Hagstofa Íslands notar Tramo-Seats aðferð við árstíðaleiðréttingu.

Júlí 2015 nær til fimm vikna, frá 30. júní til 2. ágúst. Úrtakið var 1.528 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reyndist nettóúrtakið 1.487 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.147 einstaklingum sem jafngildir 77,1% af endanlegri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna um atvinnuþátttöku eru ±2,0, hlutfall starfandi ±2,2 og atvinnuleysi ±1,1. Allar fjöldatölur eru afrúnaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í júlí - mæling
    Öryggisbil    Öryggisbil    Öryggisbil 
  2013 (±95%)  2014 (±95%)  2015 (±95%) 
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 84,0 2,3 85,0 2 84,5 2
Hlutfall starfandi 81,0 2,4 82,2 2,1 81,8 2,2
Atvinnuleysi 3,6 1,3 3,3 1,1 3,2 1,1
Vinnustundir 43,3 1,4 42,0 1,2 43,1 1,3
Vinnuafl 191.100 5.200 196.000 4.600 197.500 4.800
Starfandi 184.100 5.600 189.600 4.900 191.200 5.100
Atvinnulausir 6.900 2.500 6.400 2.200 6.300 2.200
Utan vinnumarkaðar 36.400 5.200 34.700 4.600 36.200 4.800
Áætlaður mannfjöldi 227.400 230.600 233.600

 

Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétting
   
  feb.15 mar.15 apr.15 maí.15 jún.15 júl.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 82,5 82,7 82,2 82,9 83,1 81,9
Hlutfall starfandi 78,6 79,6 78,5 79,4 80,4 78,4
Atvinnuleysi 4,6 3,8 4,5 4,2 3,3 4,3
Vinnustundir 39,9 39,9 39,8 40,0 40,1 40,2
Vinnuafl 192.000 191.400 191.700 193.500 190.600 190.600
Starfandi 183.100 184.000 183.100 185.500 184.300 182.400
Atvinnulausir 8.900 7.300 8.600 8.000 6.300 8.100
Utan vinnumarkaðar 40.800 39.900 41.400 40.000 38.700 42.200
Áætlaður mannfjöldi 232.800 231.300 233.100 233.500 229.300 232.800

 

Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuðir — árstíðaleiðrétt leitni
   
  feb.15 mar.15 apr.15 maí.15 jún.15 júl.15
Alls 16-74 ára            
Atvinnuþátttaka 81,9 82,1 82,2 82,4 82,4 82,4
Hlutfall starfandi 78,4 78,6 78,8 79,0 79,0 79,0
Atvinnuleysi 4,3 4,2 4,2 4,1 4,1 4,1
Vinnustundir 40,0 40,0 40,0 40,0 40,0 40,0
Vinnuafl 190.200 191.000 191.500 191.800 191.900 191.800
Starfandi 182.100 182.900 183.500 183.900 184.000 183.900
Atvinnulausir 8.100 8.000 8.000 7.900 7.900 7.900
Utan vinnumarkaðar 41.900 41.700 41.300 41.100 41.000 41.000
Áætlaður mannfjöldi 232.100 232.600 232.800 232.800 232.800 232.700

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.