FRÉTT VERÐLAG 29. JANÚAR 2008

Í janúarmánuði 2008 tók gildi breyting á tímasetningu söfnunar á verðupplýsingum fyrir vísitölu neysluverðs og á útreikningstíma vísitölunnar, sbr. lög nr. 27/2007. Vísitalan er héðan í frá reiknuð miðað við verðlag um miðjan hvern mánuð en var áður miðuð við verðlag tvo fyrstu virka daga hvers mánaðar.

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í miðjum janúar 2008 er 282,3 stig (maí 1988=100). Vísitalan lækkaði um 0,1% frá því í upphafi mánaðarins en hefur hækkað um 0,18% frá desember. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 251,0 stig. Hún lækkaði um 0,05% frá því í janúarbyrjun en hefur lækkað um 0,16% frá desember.

Vetrarútsölur halda áfram og lækkaði verð á fötum og skóm um 5,1% frá  því í byrjun janúar (vísitöluáhrif -0,21%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 0,3% (-0,06%) frá mælingunni í janúarbyrjun vegna lækkunar á markaðsverði húsnæðis. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,3% (0,16%) frá því í upphafi mánaðarins.

Síðastliðna tólf mánuði (miðað við verðlag í upphafi mánaðar í fyrra en um miðjan mánuð nú) hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,3%. Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 7,7% síðastliðna tólf mánuði og fastskattavísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,5% sem jafngildir 6,2% verðbólgu á ári (3,8% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í miðjum janúar 2008, 282,3 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.574 stig fyrir mars 2008.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2007–2008
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2007
Janúar 266,9 0,3 3,2 1,1 2,9 6,9
Febrúar 268,0 0,4 5,1 2,9 3,1 7,4
Mars 267,1 -0,3 -4,0 1,4 1,1 5,9
Apríl 268,7 0,6 7,4 2,7 1,9 5,3
Maí 271,0 0,9 10,8 4,6 3,7 4,7
Júní 272,4 0,5 6,4 8,2 4,7 4,0
Júlí 273,0 0,2 2,7 6,6 4,6 3,8
Ágúst 273,1 0,0 0,4 3,1 3,8 3,4
September 276,7 1,3 17,0 6,5 7,3 4,2
Október 278,1 0,5 6,2 7,7 7,1 4,5
Nóvember 279,9 0,6 8,0 10,3 6,7 5,2
Desember 281,8 0,7 8,5 7,6 7,0 5,9
2008
Janúar 282,3 0,2 2,2 6,2 6,9 5,8

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2008
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Desember Janúar %
Vísitala neysluverðs 157,9 158,2 5,8% 5,8%
Þar af:    
Innlendar vörur 134,3 136,3 -1,4% -0,2%
Búvörur og grænmeti 131,0 133,4 -1,1% -0,1%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 136,3 138,0 -1,7% -0,1%
Innfluttar vörur alls 123,4 121,4 2,1% 0,7%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  119,4 117,3 2,2% 0,7%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 159,7 159,7 5,7% 5,1%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 160,8 160,5 6,0% 4,9%
Dagvara 127,8 130,2 -1,8% -0,3%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.